sunnudagur, febrúar 05, 2006

Valentínusardagurinn er í nánd...

...og þótt að ég sé ekki mikið fyrir svona ameríska daga þá er þetta kannski ágætis tækifæri til að gefa sínum heittelskaða einhverja fallega gjöf. Hafi ykkur t.d. lengi dreymt um að gefa kærastanum ykkar eða besta vini pels, þá er Valentínusardagurinn kannski rétta tækifærið. Hér eru nokkrar myndir af gullfallegum pelsjökkum- og frökkum sem ég komst með klærnar í; ég á nokkra á lager fyrir áhugasama aðila. Þeir munu án efa rjúka út eins og heitar lummur, pels er svo svakalega mikið "in" núna hjá karlpeningnum. Rosalega maskjúlín. Þið setjið bara inn pöntun í athugasemdirnar. Þeir munu vekja lukku þessir, I'm tellin' ya! They're hot... not!