...er nú lokið. Við Sasha löbbuðum yfir í næstu götu í morgun og létum bólusetja hana gegn alls kyns vibba eins og hundaæði og lifrarbólgu og einhverjum vírusum og svo var hún merkt. Ég bjóst við að hún yrði eyrnamerkt eins og í gamla daga en nei nei, nú er allt orðið svo tæknivætt að hundar fá svona örmerki undir húðina, svona eins og í Matrix bíómyndunum! Merkið er sett í feita sprautu og svo er því rennt undir húðina með nálinni og svo grær það bara fast þarna. Ef hún svo týnist (7, 9, 13) þá eru allir dýralæknar með svona lítinn handskanna og svo setja þeir hann bara upp að hálsinum á henni og þá kemur skráningarnúmerið hennar fram á litlum skjá ásamt nafni eigandans (Gunnarsdóttir, Ragnhildur)! Er þetta ekki stórmerkilegt? Hún er nú samt hálf sloj núna litla greyið, gekk svona hægt og rólega heim með hangandi haus, hún sem er vön að toga mig áfram svo ég spóla í snjósköflunum! Jæja, nú fer ég að drífa mig í skólann, fyrirlestur um mengun jarðvegs og grunnvatns eftir hádegi. Góða helgi öll sömul!
föstudagur, febrúar 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|