þriðjudagur, október 11, 2005

Draumur minn hefur alltaf verið...

...að opna litla búð þar sem ég gæti selt svona alls kyns smotterí. Hingað til hefur verið mjög á reiki hvort umrædd draumaverslun ætti að vera lítill samloku- og kaffibar, blómabúð sem ég ræki með mömmu, kaffi- og súkkulaðibúð... en nú er ég komin með það. Þetta á að vera lítil búð, mjög lítil, sem selur barnaföt eins og húfur, inniskó, vettlinga og fleira sem er nauðsynlegt fyrir lítil börn á Íslandi (því búðin verður að sjálfsögðu þar). Við Helga Finngs frænka fengum þá hugmynd um daginn að opna svona verslun saman og hún ætlar þá að vera með ýmsa textílhönnun, þrykkja alls kyns fallegar myndir á fatnað og selja. Hér til hliðar er sem sagt lítið sýnishorn af barnafatnaðinum sem verður til sölu í litlu skonsunni okkar.
Annars erum við fullar af góðum hugmyndum þessa dagana, við fræn-kurnar (berist fram með norðlenskum hreim). T.d. kom upp sú hugmynd í gær að fara að vinna sem plötusnúðar næsta sumar og við erum alveg búnar að hanna lúkkið og allt. Við verðum alltaf í peysum með vængjum og vel snjóþvegnum rassvasalausum gallabuxum og kínaskóm og túpusokkum úr Rúmfatalagernum (ódýrir og praktískir. Og flottir!). Svo ætlum við að vera með nokkrar bleikar strípur í hárinu (þá fyrst yrði hárið á mér þurrt, með bleikar strípur í ullar-permanentinu) og Ray Ban sólgleraugu. Svona mætum við á svæðið með fulla íþróttatösku af geisladiskum, og músíkin yrði eingöngu púkaleg, ekkert nýtískulegt og unggæðingslegt popp eins og rapparinn með plásturinn og þeldökkar stúlkur á stuttbuxum og háum hælum. Ó nei, í okkar samvkæmum verður eingöngu spilað Stolt siglir fleyið mitt, Út á gólfið m. Hemma Gunn, I was made for lovin' you m. Kiss, Ég fer í fríið og fleiri vænleg lög. Hvað varðar listamannsnöfnin okkar þá eru þau ekki alveg ákveðin, en Helga var að hugsa um DJ Dúndur og ég um DJ Raggi Bangsi. Hvernig líst ykkur á það? Þetta verður sem sagt sumardjobbið okkar Helgu næsta sumar. Jæja, ætli ég verði ekki að fara út að viðra á mér heilann og húðina.
Hvernig líst ykkur annars á að auglýsingin okkar Helgu yrði svona næsta sumar?
"DJ Dúndur og DJ Raggi Bangsi-opna kvöldið með Rabbarbara Rúnu!"
Tillögur að fleiri góðum auglýsingum óskast.