laugardagur, október 08, 2005

Komnar nýjar myndir á myndasíðunni minni

Við fórum út að borða í gær, ég og Hjörtur, Óla systir og Lísa vinnufélagi hennar og vinkona, og Loftur frændi. Við fórum á lítinn ítalskan veitingastað þar sem við fengum bæði góðan mat og gott vín og svo var "lifandi tónlist", einn gítarleikari og einn fiðluleikari. Að auki var mér boðið upp í dans af einum af ítölsku þjónunum og það þegar verið var að spila uppáhalds ítalska lagið mitt (og eina ítalska lagið sem ég þekki). Þetta er svona ítalskt þjóðlag og er oft notað í bíómyndum og auglýsingum fyrir pasta og annan ítalskan varning. Þetta var afar skondið. Eftir matinn fórum við á Krasnapolsky og fengum okkur bjór og eftir það héldu allir heim á leið, glaðir og sælir eftir vel heppnað kvöld.
Hér eru tvö sýnishorn frá kvöldinu. Sú fyrri er tekin af okkur Ólu og Lofti á fundi mafíósafjölskyldunnar í Kaupmannahöfn, og hin er af mér að dansa við þjóninn (sem Hjörtur sagði að hefði angað af svitalykt, ég varð ekki vör við það en tók hins vegar eftir risastóra demantseyrnalokknum sem hann var með í vinstra eyra).
Jæja, ég er farin að hafa mig til fyrir næstu skemmtun, bíóferð á nýja danska spennumynd sem heitir Mørket, spúkí nafn!
Góða helgi öll sömul
ciao