þriðjudagur, október 11, 2005

Ég vildi bara sýna ykkur...

...hvað ég er hryllilega mikill myndasmiður!

Þessar myndir af okkur Öbbulöbbulá lögfræðimús, fiffaði ég til svo við urðum svona líka snarbláeygar Er þetta ekki bara lekkert? Nú þarf ljósmyndarinn sem gerir sætu barnadagatölin, heldur betur að fara að vara sig. Hvað heitir hún aftur? Anna something? Libowitch kannski? Næst bæti ég geislabaugum og vængjum inn á myndina og þá er ég komin með prýðis jólakort til Öbbu :)