fimmtudagur, september 01, 2005

Til hamingju með afmælið...


...elsku Hjörtur minn :) Þetta val á mynd er afleiðing þess að þú ert alltaf með fíflalæti þegar kemur að myndatökum; ég fann enga aðra mynd af þér nema þessa þar sem þú ert fremur dapurlegur á svip. Reyndar var þessi ekki alveg laus við fíflalæti heldur, ég er bara búin að klippa þau út. Þessi mynd var nefnilega tekin þegar við vorum í Scrabble og þú hélst á Scrabble-standinum (þar sem maður geymir stafina, þið vitið) og þú varst búinn að mynda orðið GYLLINÆÐ úr stöfunum þínum. Kannski hefði ég átt að leyfa þeim parti myndarinnar að fylgja með? En alla vega, til lukku með daginn honey :)