...svaf ég vært til klukkan að verða 10
...sat ég og leysti sudoku þrautir til klukkan að verða 12
...drattaðist ég út í strætó í með lafandi tunguna úti um annað munnvikið og tók strætó kl. 12.10
...kom ég í skólann kl. 12.50, ánægð með það að vera svona tímanlega fyrsta daginn á nýrri önn
...komst ég að því mér til mikillar skelfingar að ég átti að mæta í tímann kl. 8.30 en ekki kl. 13.00!
...drattaðist ég með svitablautt hárið klesst við ennið, út í næstu bókabúð og keypti mér stílabækur og kúlupenna með kúlupenna-strokleðri (top that!)
...keypti ég gamaldags hveitikrukku í eldhúsið og sykurkrukku í stíl
...keypti ég 2 jurtasápur með vondri lykt
...keypti ég minnstu muffins form í heimi
...eyddi ég kvöldinu fyrir framan tölvuna eins og sönnum forritara sæmir :)
þriðjudagur, ágúst 30, 2005
Í dag...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|