Í gær fór ég með gleraugun mín í viðgerð í verslunarmiðstöð rétt hjá skólanum (þetta fer að verða mánaðarlegur viðburður hjá mér... næst fæ ég mér umgjörð úr stáli og sjóngler úr frauðplasti, ætli það sé ekki hægt?). Nú nú, gekk ég þá ekki fram hjá hobbyverslun sem heitir Panduro og þvílík paradís! Ég hefði getað verið þarna inni svo dögum skipti hefði ég ekki verið rekin út sökum lokunartíma verslunarinnar. Nú, ég ákvað að kaupa mér eitthvað svona föndurkennt og lét gamlan draum rætast um að gera eitthvað með mósaík. Ég keypti mér 2 pakka af litlum mósaík flísku-pakkinn kostar 15 krónur og það eru rúmlega 200 kubbar í hverjum pakka! Top that! Svo fór ég í svona ódýra skranbúð og keypti mér 6 smelluramma á 3 krónur stykkið og svo er planið að setja allar fjölskyldumyndirnar í svona ramma. Ég er nú þegar búin að gera einn ramma og þetta kemur ótrúlega vel út með svarthvítu fjðlskyldumyndunum mínum sem ég er að safna. Kannski ég skelli inn einni ljósmynd af listaverkunum þegar ég er búin að þessu.
Djííí, ég þarf að hlaupa út í strætó, sit óklædd við tölvuna og langferðarbíllinn fer eftir 10 mín! Góða helgi kæru lesendur :)

|