mánudagur, september 05, 2005

Thank God for coffee

Ég hef sagt þetta áður, segi það nú og mun alltaf segja-HVAÐ Í ÓSKÖPUNUM MYNDI ÉG GERA ÁN KAFFIS?? Ég vaknaði við klukkan 8 sem er óvenju seint af virkum degi að vera, en ég er ekkert í skólanum á mánudögum :) Ég sem sagt reif mig á fætur til að fara í þvottahúsið þar sem ég átti pantaðan tíma í hinum risastóru rússnensku þvottavélum. Ég get svo svarið það, ég gæti auðveldlega komið mér fyrir inni í annarri þeirra og lagt mig með sæng og kodda, og það myndi ekki fara illa um mig! Svo stórar eru þær! Jæja. Ég sem sagt fór í þvottahúsið en stóðst freistinguna að leggja mig inni í þvottavélunum og setti bara fullt af handklæðum og sængurfötum inn í þær í staðinn. Drattaðist síðan aftur upp í íbúð og þá fór hausverkurinn að láta á sér kræla-hausverkur, ég sem aldrei fæ svoleiðis, 7-9-13. Ég fór í sturtu og stóð lengi undir bununni en ekki lagaðist hausverkurinn. Ég greiddi á mér hárið og fór í þægileg föt en ekki lagaðist hausverkurinn. Þá fór út að glugga í stofunni til að anda að mér fersku lofti-nota bene ég fór út að glugganum og stakk trýninu út um rifuna á glugganum því við erum ekki með svalir þótt við búum uppi á 3. hæð! Weird ekki satt?? Nú, hausverkurinn lagaðist ekki við innöndun hins raka danska lofts. Þarna var ég virkilega farin að örvænta-átti ég að vera með þennan hausverk það sem eftir var lífs míns? Var það virkilega meiningin?? Þá uppgötvaði ég hvað var að-ég var enn ekki búin að fá morgunkaffið. Ég flýtti mér að laga tvöfaldan espressó og hita mér mjólk og viti menn-hausverkurinn lagaðist! Jätte bra (takk fyrir sænskukennsluna María mín).

Annars erum við Hjörtur búin að vera ansi dugleg um helgina. Við fórum í Ikea á laugardaginn og keyptum okkur ný húsgögn í svefnherbergið. Það var dálítið dapurlegt nefnilega, aðallega út af tölvunni og hinum hjúmangus stóra skjá sem var á skrifborði inni í enda herbergisins. Við fórum og keyptum okkur sniðugasta skáp í heimi, einmitt í þeim tilgangi að fela tölvuskrímslið. Skápurinn heitir í Ikea bæklingnum, Johan, og lítur svona út þegar hann er lokaður...

og svona þegar hann er opinn!


Er hann ekki stórsniðugur? Svo keyptum við okkur bókahillu sem lítur svona út...


og svo 3 vegghillur sem líta svona út...



Þannig að íbúðin okkar hefur tekið stakkaskiptum, má eiginlega segja. Við erum agalega ánægð með breytingarnar og þá sérstaklega á svefnherberginu. Hillurnar eru dálítið hráar að sjá á þessum myndum, ég á eftir að setja meira skraut á þær og svo sá ég að það er hægt að fá bæs í hvítu, rauðu, grænu og bláu í Ikea. Það getur vel verið að ég bæsi hillurnar, t.d. þessa í eldhúsinu í bláum lit og þessa fyrir ofan skrifborðið í hvítu. Svo var nú alltaf planið að bæsa skrifborðið líka í hvítu og þá gæti jafnvel verið sætt að hafa hilluberana hvíta en sjálfa hilluna í einhverjum lit, t.d. bláum :) Þegar ég hugsa um það þá er eiginlega allt inni hjá okkur í svona skandínavískum litum, bláu og hvítu og húsgögnin annað hvort antíkhvít eða úr beiki. Fyndið :) Ég er reyndar mjög hrifin af svona skandínavískum hytte-ude på landet-oppe i fjeldet-innanhúss stíl, svo það er kannski engin tilviljun að litavalið er þetta.

Heyrðu, jeminn eini, það var þoka þegar ég vaknaði en nú er komin sól og örlítil gola; sem sagt, dásamlegur þurrkur! Ég ætla að hlaupa niður í þvottahús og leggja mig í þvottavélinni, nei að öllu gríni slepptu þá ætla ég niður í þvottó og ná í sængurfötin sem ég var að þvo og skella þeim út á snúrur. Verst að ég á ekki klemmur, ætli ég geti ekki stolið af einhverjum hérna í húsinu? Kannski einhver hafi skilið eftir sig klemmur úti á snúru, kannski þarf ég að brjótast inn hjá einhverjum og stela þeim. Eða kannski væri þá bara einfaldara að labba út í búð og kaupa klemmur? hmmm... Until next time-ciao