Í stuttu máli sagt:Dásamlegt veður með tilheyrandi sólbaði og bruna á öxlum
Útskriftarveisla hjá Beggu sem er nú orðin menntuð leikkona
Finnur bróðir kom í heimsókn eina kvöldstund og við grilluðum og kjöftuðum lengi lengi
Borðuðum almennt ótrúlega góðan mat alla helgina; fiskibollur (ég er loksins búin að finna góða fiskbúð í Kaupmannahöfn með FERSKUM og góðum fiski), roastbeef, grillmat, súkkulaðiköku, belgískar súkkulaðitrufflur... mmm!
Strandarferð í gær þar sem við litla mús spígsporaði um í sandinum á tánum með nýja sólhattinn sinn (sjá sýnishorn hér að ofan)
Góða stutta vinnuviku öll sömul!
