Sýnir færslur með efnisorðinu hvítasunnan. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu hvítasunnan. Sýna allar færslur

þriðjudagur, maí 13, 2008

Hvítasunnan

Í stuttu máli sagt:
Dásamlegt veður með tilheyrandi sólbaði og bruna á öxlum

Útskriftarveisla hjá Beggu sem er nú orðin menntuð leikkona

Finnur bróðir kom í heimsókn eina kvöldstund og við grilluðum og kjöftuðum lengi lengi

Borðuðum almennt ótrúlega góðan mat alla helgina; fiskibollur (ég er loksins búin að finna góða fiskbúð í Kaupmannahöfn með FERSKUM og góðum fiski), roastbeef, grillmat, súkkulaðiköku, belgískar súkkulaðitrufflur... mmm!

Strandarferð í gær þar sem við litla mús spígsporaði um í sandinum á tánum með nýja sólhattinn sinn (sjá sýnishorn hér að ofan)

Góða stutta vinnuviku öll sömul!