þriðjudagur, febrúar 26, 2008

Brandari dagsins-ég hló mig máttlausa... svona næstum því

Guðmundur var að spjalla við Tom, kunningja sinn í Kaliforníu. „Ég er að fara til La Jolla í næstu viku", sagði Guðmundur. „Þú átt að segja La 'Hoj-a'!" greip Tom fram í. „Ó, ég skil. Við hjónin ætlum að dvelja á El Cajón hótelinu", bætti Guðmundur við. „Þú meinar El Ca 'Hóne' hótelinu!" leiðrétti Tom aftur. „Úps, ég skil.", sagði Guðmundur. „Hvenær ferðu svo aftur til Íslands?" spurði Tom. Guðmundur hugsaði sig um í smástund og sagði svo varfærnislega: „Veit ekki, annaðhvort í húní eða húlí."