mánudagur, desember 17, 2007

Föndur smöndur 3

Jæja, skyldu jólakortin koma í dag? Ætli ég geti komið þeim í póst jafnvel á morgun? Munu vinir og ættingjar okkar hjónanna fá jólakort ársins frá okkur í desember í stað janúar? Þetta mun allt saman skýrast seinna í dag...

...vorum annars komnar á fætur ótrúlega snemma í dag mæðgurnar, vöknuðum klukkan 7 og ég stóð böðuð og greidd í galakjólnum fyrir klukkan 8. Ég ætla að laga mér almennilegt kaffi latte í tilefni þess að það er mánudagur og jólin eftir viku og að ég skyldi LOKSINS koma mér á fætur á almennilegum tíma. Best að eyða þá ekki hinum dýrmæta tíma í internetslúður heldur koma sér að verki, borða og mata og klæða músina og koma mér í vinnuna.

Þið getið búist við framhaldi á hinni ofsafengnu framhaldssögu "Jólakort familien Hjörturdóttir 2007" síðar í dag eða á morgun.

Adios!