...var einstaklega ljúf. Á föstudaginn fór ég í Halloween afmælispartý en gleymdi (sem betur fer) að taka mynd af "búningnum" mínum sem samanstóð af gamalli hárspöng með tveimur álímdum þykjustunni kattareyrum. Ég bjó þau til úr dökkbláu selsskinni sem ég keypti á Grænlandi sumarið 2006 en ég keypti fullan poka af selsskinnsbútum í alls kyns litum og ætlaði mér alltaf að gera bæði inniskó og lúffur á Önnu Dúfu. Hérna í vinnunni eru skápar frammi á gangi með alls kyns grænlenskum hlutum, m.a. bikini úr selsskinni. Spurning um að sauma svoleiðis á sjálfa mig? Svo er í þessum sama skáp voðalega fallegt jólaskraut úr rauðu selsskinni (rétt upp hönd sem hefur séð rauðan sel) og bók sem heitir "lærðu að sauma úr selsskinni". Ég þarf greinilega að nálgast það rit. Nú, aftur að helginni... afmælispartýið var hið fínasta og gaman að sjá búningana hjá öllum stelpunum (þetta var sem sagt stelpupartý). Á laugardaginn fórum við familían í bæinn og fórum á mjög skemmtilegt kaffihús sem heitir Joe and the Juice þar sem ég fékk alveg hreint ótrúlega hressandi djús! Ég fann bókstaflega hvað ég vaknaði við það að drekka hann, enda var ferskt engifer í honum sem jú á að virka dálítið "uppkvikkandi" (ég var að búa þetta orð til).
Á laugardagskvöldinu vorum við hjónin beðin um að líta eftir einu af börnunum úr mömmuklúbbnum í klukkutíma, mamman var í veislu og pabbinn þurfti að keyra inn í miðbæ til að sækja eldri dóttur þeirra þar sem hún var í pössun. Litla stúlkan sem við pössuðum svaf í vagninum sínum undir eldhúsglugganum hjá okkur en þar sem það var orðið ansi dimmt þá var ég dálítið nervus yfir því að hafa hana úti og var því stanslaust úti í glugga að líta eftir henni. Í eitt skiptið sá á ég að nágranni okkar, ung tyrknesk kona sem ég hef aldrei talað við, stóð við dyrnar hjá öðrum nágranna okkar og ég sá að hún var með barnið sitt í fanginu. Barnið hef ég heldur aldrei séð en ég vissi að þetta var mjög ungt barn. Fyrst sá ég ekkert athugavert við þetta en svo áttaði ég mig allt í einu á því að konan var á náttslopp og þetta er kona sem venjulega er klædd í svört klæði frá toppi til táar og gengur um með svartan klút á höfðinu. Ég flýtti mér út og þá hafði enn enginn komið til dyra þar sem unga konan hafði reynt að banka. Hún kom nánast hlaupandi til mín og sagði hágrátandi "hvað er að barninu mínu?" og rétti mér hágrátandi kornabarnið sem var á samfellunni einni saman. Ég fann að sammfellan var öll blaut, eiginlega hálf slímkennd og ég flýtti mér að fara inn með konuna og barnið. Þegar við komum í birtuna sá ég að barnið var búið að kasta upp og þar var komin skýringin á bleytunni. Konan sagði mér óðamála og hágrátandi að barnið gréti stanslaust og ætti erfitt með að anda og svo væri hann búinn að kasta heil ósköp upp. Hún spurði hvort ég gæti haldið á honum á meðan hún klæddi sig því hún ætlaði með hann á læknavaktina. Ég játti því auðvitað og fór með drenginn inn í stofu þar sem ég klæddi hann úr samfellunni og gekk svo með hann um gólf og reyni að hugga hann. Eftir fáeinar mínútur hætti hann að gráta og sofnaði á öxlinni á mér, litla skinnið. Mér fannst strax að það væri ekkert alvarlegt að þessu barni, hann var stór og stæðilegur en mér fannst hann bera sig eins og Anna Dúfa gerði þegar hún var með í maganum; kreppti litlu hnúana og var svona allur í hnút. Skömmu síðar kom móðirin og sagði að hún væri búin að panta leigubíl, ennþá greinilega mjög hrædd og miður sín. Hún talaði ekkert sérstaklega góða dönsku og þess vegna, eiginlega án þess að hugsa mig um, bauð ég henni að fara með henni á læknavaktina. Hún þakkaði mér innilega fyrir og sagðist mjög gjarnan vilja hafa mig með sér. Við pökkuðum barninu inn í Brynhildarteppið hennar Önnu Dúfu og flýttum okkur út í leigubíl, en eftir stóð Hjörtur með AD á handleggnum fyrir utan húsið og reyndi að rugga barnavagninum með hinni hendinni því litla stúlkan hafði vaknað við allt umstangið. Nú, til að gera langa sögu stutta þá fórum við á læknavaktina þar sem drengurinn var rannsakaður og það var ekkert að honum annað en kvef og mögulega magakveisa. "En flot fyr", eins og læknirinn sagði. Ástæðan fyrir því að móðirin var svona hrædd var sú að hún hafði farið á læknavaktina fyrr um daginn og vakthafandi læknir hafði sagt henni að það væri mjög hættulegt ef barnið fengið meira en 38,5 stiga hita og barnið var með 38,4 stiga hita þegar við fórum með hann þarna um kvöldið. Ég efast nú samt um að læknirinn hafi sagt að þetta væri hættulegt fyrir barnið, en held að mamman hafi mögulega misskilið hann eitthvað sökum lélegrar dönskukunnáttu. Þegar við komum út frá lækninum var pabbinn kominn, í jafn miklu sjokki og mamman og hann bað mig að segja sér hvað læknirinn hefði sagt okkur og spurði mig einmitt hvort það væri ekk hættulegt fyrir drenginn að vera með hita. Ég gat ekki annað en vorkennt þeim, þetta eru ungir krakkar og ég gat vel skilið að þau væru hrædd með litla barnið svona kvefað og sífellt grátandi. Ég man bara sjálf hvað ég var hrædd þegar Anna Dúfa var lögð inn út af gulunni, ég kom varla dúr á auga fyrstu 2 næturnar á spítalanum og var alltaf að kíkja ofan í vögguna og athuga hvort hún drægi nú ekki örugglega andann. Anyway... við fórum síðan aftur heim með litla barnið, ég heim til minnar familíu og þau heim til sín með litla stóra drenginn :)

Þetta var nú löng saga... í gær fóru þau feðginin út á leikvöll í langan tíma og ég saumaði ákaflega fallegt (!) flísvesti á stúlkuna með hettu sem passar engan veginn á hana. Hún er eins og Hringjarinn frá Notredame þegar maður setur hettuna á hana en who cares? Hver segir að maður þurfi að nota hettuna? Iss.. Stúlkan svaf síðan ansi illa í nótt, hún grét og lét öllum illum látum í 2 tíma, frá 3 til 5, því ég vildi ekki taka hana upp í rúm (erum að reyna að venja hana af næturbrjóstagjöfinni). Hún sofnaði að lokum, gjörsamlega útkeyrð og afskaplega óhamingjusöm yfir þessari mannvonsku í móður hennar. Við vorum því frekar tuskuleg foreldrar hennar í morgun en stúlkan var hin kátasta. Ég ætla by the way að skella inn nýjum myndum á síðuna hennar í dag eða á morgun og skrifa í vefdagbókina. I promise. Endilega fylgist með því. Nú verð ég hins vegar að fara að vinna... þarf að vinna að greininni sem ég er að skrifa. Svo getur verið að það verði tekið við mig og samstarfskonu mína viðtal sem birtast í einu af stærstu dömutímaritum Danmerkur. Segi ykkur meira frá því ef af því verður...

|