Mér finnst söngvarinn Mika ansi kjút náungi, alla vega röddin, og þetta lag finnst mér voðalega kjút, en er hann ekki eitthvað að stela byrjuninni frá byrjuninni á þessu gamla góða lagi? Hlustið og segið mér hvað ykkur finnst. Þið þurfið heldur ekkert að segja mér það svo sem, en bæði lögin eru fínustu föstudagslög og fín yfir rauðvínsglasi/föstudagsþrifum/bleyjuskiptingum/búningasaumaskap... hvað sem þið hafið kosið að taka ykkur fyrir hendur á þessum fína föstudegi. Ég prívat og persónulega er að fara í Halloween afmælispartý í kvöld og er því að sauma mér búning þessa stundina, eða svona fylgihluti til að peppa aðeins upp kjólinn minn. En alla vega... hlustið á lögin (COPY og PASTE).
föstudagur, október 26, 2007
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|