þriðjudagur, janúar 02, 2007

Bumbumynd vikunnar (38 vikur sléttar)

Til að byrja með, gleðilegt nýtt ár öll sömul!

Nú fer heldur betur að styttast í þetta enda ekki nema 12 dagar í áætlaðan fæðingardag. Nú er ég búin að gera heimasíðu fyrir stúlkuna þar sem við munum setja inn myndir þegar þar að kemur. Enn sem komið er, eru bara sónarmyndir í myndaalbúminu. Heimasíðan er læst og þið getið fengið leyniorðið með því að senda okkur póst (það skýrir sig allt saman þegar þið komið inn á heimasíðuna) eða ef þið náið í mig á msn þar sem ég er flesta daga. Slóð heimasíðunnar er:

Nú, hér er svo myndin af konunni í hinum klassísku náttbuxum.

Svo eru hér í lokin tvær myndir af jólatrénu okkar og gjafaflóðinu sem að mestu var til litlu stúlkunnar ófæddu. Takk enn og aftur fyrir okkur, kæru vinir og ættingjar!