fimmtudagur, desember 28, 2006

Tíminn milli jóla og nýárs...

...er oft svolítið skrýtinn tími þar sem maður er í svona "hálfu fríi". Jólin í fyrra vorum við hins vegar í "heilu fríi" þar sem prófunum lauk rétt fyrir jól og við gátum þess vegna legið uppi í rúmi og lesið og haft það kósý fram í byrjun janúar. Jólin 2001-2004, á meðan við vorum enn í Álaborgarháskóla, þurftum við hins vegar alltaf að lesa fyrir prófin sem byrjuðu í janúar. Þá var oft hálfgert stress að fara í jólafrí og maður fékk samviskubit ef maður var of lengi frá bókunum og öll hin huggulegu fjölskylduboð og jólabókalesturinn urðu nærri því að kvíðavekjandi athöfnum! Í ár eru þó án efa undarlegustu jólin, ef svo má segja. Nú er orðið svo stutt í áætlaðan fæðingardag að við bíðum bara spennt en samt má maður ekki alveg missa sig í spenningnum því við eigum bæði að skila lokaverkefnunum okkar í byrjun janúar og keppumst þess vegna við að skrifa og halda almennum sönsum. Við erum þó ekki svo kappsöm að rífa okkur á fætur fyrir allar aldir heldur liggjum við og lesum og horfum á bíómyndir fram á nótt og sofum fram undir hádegi. Ég get þó aldrei sofið svo lengi því ég vakna alltaf stíf í bakinu eins og trjádrumbur og með blöðruna gjörsamlega fulla! Skemmtilegt ástand... þetta er þó alls ekki neitt til að kvarta yfir, ég verð að segja það að þessi meðganga hefur verið leikur einn og mér hefur sjaldan liðið betur. Ég væri svei mér þá til í að gera þetta aftur mjög fljótlega! Mér var óglatt í 10 daga til að byrja með en svo fann ég ekki fyrir neinu fyrr en ég fór að finna fyrir bakinu fyrir ca. 2 mánuðum síðan. Ég er hins vegar fín á meðan ég er á fótum, þessi stífleiki hrellir mig bara eftir næturlangan svefn. Og svo auðvitað hið eilífa pissustand. Ætli maður fari ekki upp undir 47 sinnum á klósettið á dag og 10 sinnum á hverri nóttu. En ég segi það enn og aftur, þetta er sko ekkert til að kvarta yfir. Iss.

Svo fórum við í gær á útsölu í Ikea og keyptum skiptiborð sem við vorum búin að koma auga á og vorum svo heppin að það borð var akkúrat á 30 eða 40% afslætti. Svo keyptum við dýnu í fína bláa grindarúmið og sængurföt ásamt tveimur teygjulökum. Stóran bláan bala keyptum við líka svo hægt sé að baða litlu músina og 10 þvottastykki. Svo sá ég alveg draumlekkert röndótt prjónarúmteppi sem ég dauðsé eftir að hafa ekki keypt. Ég neyðist líklega til að skella mér aftur í Ikea eftir þessu teppi, það ásækir mig jafnt í draumi sem vöku.

Talandi um varning fyrir beibíið, þá vann hún jólagjafakeppnina á þessu heimili í ár og mun líklega gera næstu árin. Hún fékk heilan helling af fötum, m.a. skó og kanínuinniskó, buxur, peysu, húfu, vettlinga og svo fékk hún hvít sængurföt og fallegustu og sniðugustu sokka sem ég hef á ævi minni séð! Svona svart-röndóttir sokkar með áföstum litlu fígúrum á tánum sem hringlar og brakar í þegar þær eru hristar og snertar. Ég hef líka séð svoleiðis armbönd og ætla að fjárfesta í svoleiðis við tækifæri. Stórsniðugt alveg hreint.
Nú, við Hjörtur fengum líka mjög fínar gjafir; 3 bækur, 3 geisladiska, handklæði, matreiðslubækur, myndaramma með mynd í og handgert jólaskraut. Að auki fékk ég náttkjól, vesti, buxur, sjal, hálsmen og eyrnalokka í stíl og svo fékk ég myndaalbúm með fullt af myndum frá árum okkar vinkvennanna í FB. Það hefur farið mikill tími í að skoða þessar myndir og rifja upp af hvaða tilefni þær voru teknar og sumar af þessum myndum eru orðnar 10 ára gamlar... maður hefur breyst örlítið sé ég, enda ótrúlega barnaleg á mörgum myndunum! Svo má ekki gleyma stóra bleika brjóstagjafarpúðanum sem ég fékk frá Öbbu í byrjun desember, það var svona hálfgerð aðventu/jóla/sængurgjöf :)

Jæja, ætli sé ekki best að snúa sér að skrifunum svo maður nái að skila á réttum tíma. Ef sú litla heldur sig við planið þá ætti hún að fæðast eftir 17 daga en eins og er finnst mér ég eiga að minnsta kosti mánaðarvinnu fyrir höndum með þetta verkefni! Panik panik!
Hafið það gott öll sömul um áramótin og farið varlega með raketturnar og stjörnuljósin. Þetta er stórhættulegur varningur, fussumsvei. Svo sjáumst við á nýja árinu, líklega um miðjan febrúar. Ciao í bili!