...að gera góð kaup! Það gerði ég einmitt í dag í H&M, öðru nafni Sendiráði Íslands. Ég uppgötvaði í gær mér til mikillar skelfingar að ég á orðið grátlega lítið af fallegum nærfötum og hreinlega ekki einn einasta fallegan brjóstahaldara; þeir eru allir orðnir svona tuskulegir og tættir svo ég ákvað að fara á stúfana í dag og versla mér eitthvað lekkert. Venjulega svitna ég við það eitt að þurfa að fara í nærfatadeild H&M því það er svo margt til og erfitt að velja en samt sem áður finn ég aldrei neitt sem passar á mig! Annað hvort dreg ég fram einhverja undarlega spjótabrjóstahaldara eða einhverja sem ýta brjóstunum á mér upp undir höku og þetta er almennt mjög vonlaust fyrir mig. Í dag fór ég hins vegar í þægilegustu fötunum mínum og ákvað að vera mjög þolinmóð og gefa mér góðan tíma í þetta. Það bara árangur því 2 tímum síðar (mikil þolinmæði sem þurfti til...) fór ég út með 3 nýja brjóstahaldara og 3 nærbuxur í öllum regnbogans litum. Reyndar leið mér svolítið eins og Barbapapa inni í mátunarklefanum með hina ört vaxandi bumbu og vetrarforðann sem ég er búin að koma mér upp á meðgöngunni, bæði á lærum og baki og ýmsum öðrum stöðum en iss piss, ég er svo sem ekkert að velta mér upp úr því enda kjagaði ég alsæl út úr versluninni, brosandi allan hringinn :)Svo sá ég ýmislegt fallegt sem gaman hefði verið að kaupa, eins og stígvél og kápur og pils en það bíður betri tíma. Ég ætlaði að vera ansi sniðug og byrja að safna mér í fatasjóð og fara svona ca. í febrúar/mars og dressa mig upp, en ég er ekki enn byrjuð að leggja í þennan sjóð... Ætti ekki íslenska ríkið að greiða konum einhvers konar fatastyrk nokkrum mánuðum eftir meðgöngu? Ætli það yrði ekki vel þegið af kvenfólki landsins? Kannski ég skrifi lesendabréf í Morgunblaðið með þessari tillögu minni. Yrði eflaust tekið vel í hana. Eða ekki.
Jæja, farin að læra. Nú styttist í að ég eigi að skila fyrra verkefninu mínu, einungis 4 vikur til stefnu! Góða helgarrest öll sömul.

|