miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Fyrsti snjór vetrarins...

...féll í dag í Kaupmannahöfn.

Ég var agalega glöð og skellti mér í þykka peysu og forljótan regnjakka, sem er eina yfirhöfnin sem passar utan um mig þessa dagana, og fór út í göngutúr með hundinn. Svona mætti veðrið vera alltaf mín vegna. Ég ELSKA snjó og kulda! Það er svo auðvelt að klæða kulda af sér, það er verra með hinn andstyggilega hita á sumrin-maður getur ekkert gert nema bara leggjast niður og vona að þetta líði hjá sem fyrst...

...nú þarf ég líklegast að fara að drífa mig í hina árlegu trefils-húfu-vettlingaferð mína í H&M. Ég lýg því að sjálfri mér á hverju ári að ég sé búin að týna gamla vetrarsettinu til að geta keypt mér nýtt en ég tek það fram að þetta á ekki við um hvaða föt sem er, til dæmis sundföt. Hinum ofsaheitu júlídögum á þessu ári eyddi ég á ströndinni í ljótustu stuttbuxum ever og gömlum slönguskinns-bikinitopp. Ótrúlega ljótt sett en ég var alsæl. Hins vegar yrði ég afskaplega sorgmædd ef ég þyrfti að darka um stræti borgarinnar með ljótan og sjúskaðan trefil og Thinsulate flís-fingravettlinga, svona sem maður kaupir á bensínstöð. Það myndi algjörlega brjóta mig niður!

Kveðjur úr Vetrarhöllinni,
missis Thinsulate