Þótt að enn séu fjórir mánuðir í fæðingu frumburðarins þá er ég samt farin að skoða hinn ýmsa smábarnavarning á alþjóðavefnum. Verslanir Danmerkur er hreinlega fullar af fallegum vörum og ég eyði fjöldanum öllum af klukkutímum í að skoða þessar gersemar, algjörlega heilluð! Það versta er, að úrvalið er svo mikið að ég mun eiga bágt með að velja úr þessari fegurðarsúpu þegar þar að kemur. Þess vegna mun ég á næstu mánuðum, setja inn skoðanakannanir til að aðstoða mig við valið. Hér kemur sú fyrsta og ég bið ykkur vinsamlegast um að taka þátt kæru lesendur. Ég vil benda á, að ég hef í fjölda mörg ár átt gamlan bláan barnaklæðaskáp sem á að fara inn í barnaherbergið og þess vegna féll ég fyrir bláu útgáfunni af fyrsta rúminu en ekki ljósbleiku útgáfunni, þótt um stúlku sé að ræða. Sjá myndir fyrir neðan.
Hvaða barnarúm þykir ykkur fallegast?

Rúmið hér til vinstri fæst líka í ljósbláu.
Rúminu fyrir neðan fylgir skúffa undir rúmið (til hvers?) en skiptiborðið fylgir ekki með.



|