mánudagur, september 11, 2006

Risadvergurinn er enn á lífi...

...og er svo sannarlega orðinn RISAdvergur því eins og flest ykkar vita, er ég ófrísk og er gengin fimm mánuði með. Það sást nú ekkert á mér fyrr en um það leyti sem ég kom heim aftur frá Grænlandi 21. ágúst og svo óx bumban heil ósköp á Íslandi! Það gerir slátrið, fiskurinn og rófurnar. Þar sem ég get borðað endalaust af íslenskum "kallalegum" mat, þá tók ég með mér bæði lifrarpylsu, harðfisk og saltkjöt þegar ég fór aftur heim til Kaupmannahafnar í síðustu viku. Já, og 2 rófur tók ég líka með því það góðgæti hef ég ekki séð í dönskum matvöruverslunuum í sumar. Slátrið steikti ég og gerði rófustöppu með (Hjörtur afþakkaði pent...) og svo sauð ég saltkjötið og gerði jafning með. Þetta er himneskur matur og ég vildi bara óska að ég ætti meira til af honum. Gott væri jafnvel að eiga bara heila frystikystu fulla af íslenskum nýjum fiski, lifrarpylsu, saltkjöti, íslensku lambakjöti... o.s.frv.

Sumarið hefur annars verið ótrúlega fljótt að líða. Júní fór að mestu leyti í að undirbúa fyrri Grænlandsferðina sem stóð yfir í rúma viku í lok júní. Júlí eyddi ég að mestu á rannsóknarstofu skólans þar sem ég rannsakaði þau vatns- og jarðvegssýni sem við Birna höfðum tekið í ferðinni góðu. Við Hjörtur reyndum líka að vera dugleg að fara á ströndina sem er stutt frá kollegíinu okkar og er algjör paradís, með útýsni yfir til Svíþjóðar og litlum grillbar og ísbúð á ströndinni. Við fengum líka góða gesti í júlí, Daníel frændi og Halla kærastan hans komu í 6 daga heimsókn sem var mjög gaman. Reyndar fannst mér hitastigið í júlí vera full hátt, það fór oft upp í 30 og jafnvel 35 stig sem er allt of mikið fyrir ísbirni eins og mig. Júlí leið samt allt of fljótt og áður en ég vissi af var kominn 31. júlí og þá fór ég seinni ferðina til Grænlands sem stóð yfir í 3 vikur. Ég gæti skrifað heila bók um þá ferð, frá svo mörgu er að segja, en í stuttu máli sagt þá var ferðin mjög góð þótt mér hefði þótt nóg að vera í 2 vikur. Ég gat klárað það sem ég átti að klára varðandi uppsetningu á þurrklósettinu og allt gekk vel hvað varðar verkefnavinnuna. Þyrluferðalagið var frábær upplifun, ég hef aldrei ferðast á þægilegri hátt en í þyrlu og hefði ekkert á móti því að eiga eina litla úti á bílastæði til að skjótast í skólann á morgnana og út í búð á daginn. Almennt séð var ferðin á heildina litið mjög vel heppnuð og ég kynntist skemmtilegum og góðum stelpum sem bjuggu með mér á kollegíi, og við ákváðum að stofna köku- og matarklúbb og ætlum að hittast reglulega í vetur og líklega verður fyrsta matarkvöldið okkar síðar í mánuðinum.
Ég kom svo aftur til Köben 21. ágúst og var endalaust fegin að komast heim og að hitta Hjört. Við höfum aldrei verið svona lengi aðskilin í þau sex ár sem við höfum verið saman og mig langar hreint ekkert að vera svona lengi frá honum aftur í bráð. Við fórum síðan saman til Íslands 23. ágúst og þar sem Hjörtur var bara á landinu í viku þá var prógrammið ansi þéttskipað hjá okkur þá daga. Það var samt mjög gaman og við náðum að gera ansi margt, fórum í mat til mömmu hans og bróður og familíu, pabba hans og svo var grillveisla heima ásamt foreldrum mínum og systkinum og mömmu hans Hjartar. Við fórum líka í kvöldkaffi til Helenu og kíktum á litlu músina þeirra sem fæddist 13. ágúst og er algjört yndi! Þar að auki fórum við í mat til Ólu systur og til Helga bróður. Svo fór ég í kaffi til Arngunnar tvisvar sinnum og í heimsókn til Brynhildar austur á Selfoss þar sem hún bauð upp á dýrindis heilsudinner og svo fórum við í pottinn (hún býr í lítilli höll, skal ég segja ykkur!) og kjöftuðum á okkur gat að sjálfsögðu. Daginn áður en ég fór heim aftur til Köben kíkti ég svo í heimsókn til Öbbu minnar þar sem ég fékk dýrindis kryddbrauð og kaffi. Þar auki náði ég að fara í sund með pabba nokkrum sinnum, skreppa í stuttan verslunarleiðangur í Kringluna með Helgu frænkuvinkonu og búa til nokkra glermuni hjá mömmu hans Hjartar. Þetta voru því mjög svo bizí en skemmtilegar tvær vikur sem ég var á landinu góða í norðri.

Á döfinni er fátt annað en að halda áfram að ganga með krílið, skrifa lokaverkefni ásamt aukaverkefninu sem ég er að gera um þurrklósettið. Svo er von á gestum í lok september, Helga kemur í heimsókn ásamt Gunnari kærastanum sínum og þau verða í fimm daga. Ég get hreint ekki beðið eftir að fá þau í heimsókn! Helga kom til okkar Hjartar síðast fyrir einu og hálfu ári síðan og það voru einhverjir huggulegustu fimm dagar sem ég hef upplifað!

Nú ætla ég hins vegar að fleygja mér í klukkutíma eða svo með afmælisbókina mína frá Arngunni og Brynhildi.
Ciao að sinni.
Bjössi bolla