Þá erum við búin að panta okkur far heim til Íslands. Við komum 23. ágúst sem er á miðvikudegi og HJ fer heim aftur viku síðar því hann þarf að byrja í skólanum en ég verð 6 dögum lengur og fer heim þriðjudaginn 5. september. Það er mjög margt sem mig langar að gera þegar við komum heim; mig langar auðvitað að hitta alla fjölskylduna, helst í matarboði með fullt af góðum mat og svo ætla ég að heimsækja allar vinkonur mínar ástkæru og fjölskyldur þeirra og hlakka alveg gasalega mikið til! Ég hef t.d. ekki hitt Fanneyju dóttur Maríu og Andra og kannski verður Helena líka búin að eignast litla ungann sinn svo það verður nóg að gera í barnaskoðun hjá mér. Þess utan langar mig að fara í sund, helst á hverjum degi og ég var í síðasta bloggi búin að skrifa niður allan þann mat sem mig langar að gæða mér á. Gaman væri líka að fara út á land, t.d. á Hornafjörð og hitta fjölskylduna mína þar og keyra um sveitirnar fögru. Allt þetta ætla ég að gera á 13 dögum svo nú er kannski best að ég fari að skella þessu inn í eitt Excel skjal eða svo. Þetta verður líklega síðasta bloggið mitt í sumar þar sem ég fer til Grænlands eftir viku og ég býst ekki við að geta bloggað þar en við sjáumst alla vega á Íslandi eftir tæpan mánuð! Hafið það gott það sem eftir lifir sumars, vinir og familia nær og fjær, þó aðallega fjær, því miður...
mánudagur, júlí 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|