mánudagur, júlí 17, 2006

Hún á afmæli í dag...

...og er því orðin 28 ára gömul. Búin að fá fínar gjafir og sms og aðrar kveðjur frá vinum og ættingjum. Takk fyrir það öll sömul. Nú fer annars að styttast í Grænlandsferð númer tvö hjá mér, það eru akkúrat tvær vikur í dag þangað til ég fer og þar af leiðandi fimm vikur þar til þeirri ferð lýkur! Laaaangur tími. En þetta mun án efa verða skemmtilegt og eitthvað sem maður getur sagt börnunum sínum frá, þið vitið, "nú ætla ég að segja ykkur söguna af því þegar ég fór í kapphlaup við ísbjörninn hérna um árið" eða "nú ætla ég að segja ykkur söguna af því þegar ég drakk alla Grænlendingana undir borðið hérna um árið" eða "nú ætla ég að segja ykkur söguna af því þegar ég veiddi 27 seli á einum degi hérna um árið". Veðrið er annars búið að vera alveg dásamlegt hér í Danmörku og kannski hálfgerð synd að fara til Grænlands í þrjár vikur þegar sólin skín hér alla daga og allt flæðir í ferskum dönskum jarðarberjum, bláberjum, rifsberjum á runnunum hérna úti í garði, nýjum kartöflum, fersku grænmeti, kúluís á hverju horni og ég veit ekki hvað og hvað. Annars hefur mig mest af öllu langað í svona kallalegan mat undanfarnar vikur. Hér eru nokkrir af þeim réttum sem mig hefur dreymt um:

  • Nætursöltuð ýsa með hömsum, rófum og gulrótum og nýjum kartöflum
  • Steikt slátur með rófustöppu
  • Reykt ýsa með heimatilbúinni kartöflumús
  • Heimabakað rúgbrauð með kæfu og gúrku
  • Steiktar kjötbollur með brúnni sósu og sultu
  • Kálbögglar með bræddu smjöri, sem sagt soðnar kjötbollur með hvítkáli vöfðu utan um
  • Fiskröndina hennar mömmu
  • Fiskigratínið hennar mömmu
  • Plokkfiskinn hennar mömmu (vá, hvað er málið með fisk og mömmu undirritaðrar?!)
  • Bjúgu með jafningi
  • Saltkjöt og baunir
  • Kjöt í karrý

og ég gæti haldið endalaust áfram! Mamma er búin að lofa mér að hafa þetta allt saman á boðstólum þegar við komum heim í sumar. Ég sé þess vegna ekki fram á að komast mikið út á meðal fólks á meðan við erum á Íslandi, ég mun líklega eyða mestum hluta tíma míns við eldhúsborðið hjá mömmu og pabba. Annars kemur Daníel litli frændi minn í heimsókn á morgun ásamt kærustunni sinni og þau verða hér í tæpa viku, og mamma ætlar að vera svo væn að fara og kaupa handa mér lítinn lifrarpylsukepp frá SS og senda grey drenginn með yfir hafið. Ég býst ekki við að sambýlismaður minn eða gestirnir hafi mikinn áhuga á steiktu slátri í tæplega 30 stiga hita, svo ég sé fyrir mér að ég muni einn af komandi dögum, þegar unga fólkið fer í bæinn, steikja mér slátur og sjóða mér rófustöppu og setjast út í garð, aaaalein, og gæða mér á herlegheitunum. Ég get ekki beðið.

Jæja, nú var frændi minn að senda mér uppskrift af heimagerðu rúgbrauði eins og amma mín bakaði og ég ætla ég út í búð og kaupa það sem vantar í það og hella mér svo út í rúgbrauðsbakstur í kvöld. Kallið mig bara kreisí en þetta finnst mér sko sumarlegt!

Ciao í bili í Hamragili