þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Góð kaup!

Ég ELSKA að gera góð kaup! Sérstaklega ef um er að ræða vörur sem ég er lengi búin að hafa augastað á og jafnvel slefa yfir *slúrp slúrp* en námsmanna budda mín ekki leyft mér að kaupa. Í gær fór ég í skólann og var til fara eins og aumingi! Ég var í gamalli hermannagrænni vetrarúlpu með hundaslefi á erminni og í vasanum var ég með hálftuggið hundanammi. Restin af átfittinu samanstóð af svörtum dralonbuxum, svörtum nælonbol og kuldaskóm. Á köldum vetrardegi hefði þetta kannski sloppið en í gær var vor í lofti svo mér leið eins og Michellin manninum á röltinu í Sahara. Og það versta er að fötin mín eru öll svona drungaleg og þunglamaleg! Ég ákvað þess vegna að kíkja í búðir eftir skóla og viti menn; ég fann þessa líka draumlekkeru skyrtumussu, svona aðsniðna dálítið síða en ekki svona víða hippamussa úr striga, þið skiljið. Hún er í svona dásamlegum kóralrauðum lit og með voðalega sætum hnöppum. Jæja, svo keypti ég mér hræbillegt fléttað belti, svona breitt til að hafa um mittið utan yfir mussuna og litla peysu, svona stutta. Eiginlega bara ermar. Hrikalega sæt, svona ljósgrábrún með pallíettum og púffermum. Mjög kjút. Svo fór ég aftur á stjá í dag en ætlaði ekki að kaupa neitt handa sjálfri mér, alls ekki, fór bara til að sinna svona praktískum erindum en hvað haldið þið; ég datt niður á svona stórskemmtilega útsölu þar sem ég sá peysu sem mig hafði langað í síðan í nóvember, smashingly smarta dökkbláa angórupeysu með háum kraga og stórum brúnum trétölum (það er sem sagt hægt að hafa hana opna) sem átti að kosta 600 danskar krónur en kostaði núna 65 krónur! Takk fyrir. Svo sá ég pils í svona ljós-bleikbrúnum lit með ásaumaðri blúndu. Þetta virkar geðveikt væmið en er faktískt pínu rokkað pils því blúndan er svolítið svona tætt. Mjög flott. Nú, pilsið átti að kosta 500 kall en kostaði sömuleiðis 65 krónur. Og keypti ég það?? Já, heldur betur og kippti peysunni með. Ég er sem sagt búin að kaupa eftirfarandi flíkur:
  • Kóralrauða ekki hippalega mussu
  • 2 peysur
  • Belti
  • Pils
fyrir 450 kall! Vel sloppið þykir mér fyrir föt sem eiga eftir að endast mér endalaust lengi... eða þangað til ég dett niður á næsta stórsniðuga tilboð :)