miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Fermingarfatakeppni

Þetta er ekki nýr bloggleikur, mig langar bara til að gleðja ykkur með lýsingu á fermingarfötunum mínum. Mig langar þó að biðja ykkur að kvitta með sams konar lýsingu. Verst að maður eigi ekki rafræna mynd af fegurðinni en ég reyni að lýsa þessu eins vel og ég get í staðinn:
  • Svartar velúrbuxur sem sleiktust að lærunum á mér og voru geeeeeeðveikt útvíðar! Við erum ekkert að tala um boot-cut heldur úúúúútvíðar!
  • Rauður dralonjakki sem var mjög aðsniðinn en víkkaði svo fyrir neðan mitt og lafði svona eins og kjóll niður fyrir rass. Á jakkanum voru svartir velúrhnappar og sömuleiðis voru boðungarnir svartir.
  • Rauðir velúrskór með háum þykkum hælum og bandi yfir ristina.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var smart þegar ég var komin í hvíta kirtilinn og kom arkandi upp að altarinu með buxurnar flaksandi undan kirtlinum og rauðu klósetthælaskóna. Mmmm.
Jæja, nú er komið að ykkur, ekkert svindl, allir að kvitta!