laugardagur, nóvember 05, 2005

Letihaugur, ruslahaugur...


Ég er orðin ansi löt að blogga. Ég er með svona skrif-stíflu. Finnst ég ekki hafa frá neinu skemmtilegu að segja. En það er auðvitað bara vitleysa, maður á auðvitað að skrifa jafnt um hversdagslegu hlutina eins og hin fjöldamörgu krassandi ævintýri sem maður lendir í. Hver hefur einhvern tímann sagt að það sé óspennandi að lesa um þrif á baðherberginu í Birkerød og fyrirlestra í DTU um ruslabrennslu? Það er alveg jafn spennandi og að lesa krassandi kjaftasögur í Se og Hør. Er það ekki annars?
Jæja, alla vega ætla ég að skrifa örlítið þótt að það hafi ekki margt fréttnæmt gerst síðan við Hjörtur fengum nýju íbúðina í síðustu viku. Jú, vitleysa er í mér. Ég fór í heimsókn til Maríönnu skólasystur minnar úr DTU í gærkvöldi. Við vorum saman í Álaborgarháskóla og hún flutti til Kaupmannahafnar í haust og byrjaði í DTU og klárar líklega á sama tíma og ég. Christine önnu skólasystir okkar úr Álaborgarháskóla, kom í heimsókn til Maríönnu á fimmtudaginn og við ákváðum að hittast í gærkvöldi og borða saman og skiptast á kjaftasögum :) Það er mynd af þeim stelpunum hér fyrir neðan; Maríanna er sú vinstra megin og Christine er sú ófríska hægra megin.
Við fengum ansi góðan mat, grænmeti og kjúkling steiktan á wok pönnu og hrísgrjón og salat með, sem var með því besta sem ég hef fengið lengi! Fetaosturinn í salatinu var alveg silkimjúkur og bráðnaði uppi í manni. Nú, svo sátum við bara og kjöftuðum þangað til klukkan var að verða tólf, þá dreif ég mig út til að ná síðustu lest heim.

Svo kemur Dagný um næstu helgi í heimsókn. Hún kemur á fimmtudaginn en þá verð ég akkúrat í skólaferðalagi sem við megum ekki sleppa svo ég get ekki tekið á móti henni litla skinninu. Hún þarf því að fara sjálf með lestinni, Paddington litli, út á Aðalbrautarstöð og þar getur hún sett farangurinn sinn í geymslu (5 tómar tösku sem hún mun fylla af varningi í ferðinni, eins og hún segir sjálf). Svo arkar hún bara alein niður á Strik í verslunarleiðangur með myndavélina um hálsinn og peningapunginn um mittið-ég ætla að biðja þig fyrir alla muni að standa klára á þessu túrista-átfitti Dagný mín. Svo kem ég beint úr skólaferðalaginu, sem by the way er skoðunarferð um ruslahauga, og hitti túristann inni á einhverri knæpunni niðri á Striki.
Svo ætlum við að fara í Tívolí á föstudagskvöldið því þá opnar Jólatívolí! Ég hef farið einu sinni með Hirti og það er engu líkt. Allur garðurinn er skreyttur og alls staðar er hægt að kaupa sér heitt súkkulaði með rjóma, vöfflur, eplaskífur (sem er svona sér danskt jólabakkelsi) og glögg. Pant fá mér bæði glögg og vöfflur með rjóma, mmmm... Við Paddington verðum í essinu okkar með sitthvorn peningapunginn um mittið og hver veit nema við getum orðið okkur út um derhúfur sem á stendur I LOVE ICELAND eða I LOVE GEYSIR.
Nei nei, svona án gríns þá verður þetta án efa mjög huggulegt hjá okkur. Svo ætlum við að skreppa í Fields svo hinn ungi komandi viðskiptafræðingur geti fyllt tómu töskurnar af dönsku gotteríi. Svo tilheyrir nú að fara á Strikið og skoða sig um og fara á kaffihús, og ætli ég dragi ekki litla skottið líka með mér upp í Sívala turninn. Þetta verður sem sagt dásamleg heimsókn þótt stutt verði.
Jæja, nú verð ég hins vegar að fara fram og laga mér súkkulaðikaffi og byrja að læra. Það eru bara fjórar vikur eftir af skólanum og tæpar fjórar vikur þangað til við Hjörtur flytjum og í millitíðinni þurfum við auðvitað að pakka þessari íbúð niður og þrífa og redda flutningi fyrir stóra músík-skrímslið mitt, flygilinn. Það stóð til að hann færi jafnvel aftur á heimahagana, jósku heiðarnar, en ég verð bara lin í hnjánum þegar ég hugsa til þess að senda hann frá mér. Nei ó nei, til Vedbæk flytur hann með mér og Hirti þótt hann komi til með að fylla út í hálfa stofuna. Iss, hver notar þessar stofur hvort eð er, ha? Það má þá skella pluss-sófasettinu út í garð í sumar ef fólki finnst það vera orðið full aðþrengt í félagsskap drekans. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því.
Góða helgi kæru lesendur og hafið það gott, bítt'í skott. Klassíker.