Draumakollegíið heitir Trørød kollegíið. Ekkert afskaplega þjált nafn og ekki eins fallegt nafn og Birkerød finnst mér, en umhverfið þar er alveg draumkennt. Við fengum sem sagt tilboð í síðustu viku um íbúð sem við bjuggumst engan veginn við að fá því við vorum nr. 3 á listanum sem þýðir að pörin tvö sem voru á undan okkur hafa bæði sagt nei. Þessar íbúðir eru svo góðar að ég var viss um að við ættum enga möguleika á að fá íbúðina sem þriðju í röðinni. En jú jú, okkur barst póstur í dag þess efnis að við hefðum fengið íbúðina og megum flytja inn 1. desember. Við erum alveg í skýjunum :) Hún er reyndar svipuð að stærð og þessi sem við búum í núna en hún er með 2 svefnherbergjum sem þýðir að þetta verður í 1. skipti sem ég flyt í 3ja herbergja íbúð og get haft sér tölvuherbergi og þarf ekki að hafa þetta monster inni í svefnherbergi hjá okkur! Svo er nú kannski það besta að þetta eru raðhús og hver íbúð hefur eigin garð. Ég sé alveg fyrir mér að við verðum þarna alsæl það sem eftir er dvalar okkar hér í Kaupmannahöfn :) Svo verður líka mun þægilegra að komast í skólann, í stað þess að eyða 1½-2 tímum á dag í ferðalög fram og til baka í skólann þá getum við tekið einn strætisvagn sem er ca. kortér hvora leið. Ótrúlegur tímasparnaður á hverjum degi! Svo gengur líka strætisvagn á milli nýja kollegísins okkar og Kagså Kollegísins sem Arngunnur og Valli flytja kannski á svo það verður auðvelt að renna í snemmbúið morgunkaffi á sunnudögum til þeirra hjónanna ;) Ertu ekki strax farin að hlakka til Arngunnur mín að fá okkur Hjört á hverjum sunnudagsmorgni kl. 9... "bank bank bank! Halló, hvernig sækjum við að? Er ekki búið að hella upp á fyrir mann, ha??!"
Þið getið skoðað myndir og fleira inni á heimasíðu draumakollegísins. Værsgo'
Þið getið skoðað myndir og fleira inni á heimasíðu draumakollegísins. Værsgo'

|