Sýnir færslur með efnisorðinu sónar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu sónar. Sýna allar færslur

mánudagur, júní 02, 2008

Og það var...

...STRÁKUR!
Ég hafði sem sagt rangt fyrir mér eins og á síðustu meðgöngu. Ég var 99% viss um það síðast að ég gengi með strák og núna var ég svo viss um að þetta væri stelpa að mér fannst við allt eins geta sleppt því að athuga það í sónarnum. Hjörtur var búinn að spá strák og spáði einmitt stelpu síðast. Þið skuluð þess vegna frekar biðja Hjört um að spá fyrir ykkur ef þið viljið fá að vita kynið, þið óléttu lesendur. Það sem mestu máli skiptir var auðvitað að allt leit vel út og öll líffæri á sínum stað; heilinn, hjartað, nýrun, nef, augu og munnur. Fengum ágætis sónarmyndir og vorum auðvitað lukkulegasta fólk í heimi þegar við gengum út af spítalanum og fórum beint á næsta kaffihús til að fagna góðum fréttum.
Nú ætla ég hins vegar að fara að brjóta saman þvott og pakka fyrir ferðina. Hjörtur fer með hundinn á hótel í dag og keyrir svo af stað snemma í fyrramálið en við músarskott getum tekið því rólega fram yfir hádegi því við eigum ekki flug fyrr en um 16. Býst ekki við því að blogga gríðarlega mikið á meðan á "útlanda"dvölinni stendur, en segi bara hafið það gott og við ykkur Íslandsbúsetta segi ég HLAKKA TIL AÐ HITTA YKKUR EFTIR RÚMAN MÁNUÐ!
Knús knús
RG og familía