... svaf ekki svona vært í nótt! Bæði í nótt og fyrrinótt svaf hún mjög illa því hún er svo kvefuð litla greyið að hún nær varla andanum og hóstar stanslaust. Ég er þess vegna frekar tuskuleg og var jafnvel verri í gær. Hormónasveiflurnar eru ekki orðnar nógu stabílar svo ég verð eiginlega svolítið eins og eldspúandi dreki þegar ég verð of þreytt/of svöng/of something, í ofanálag. Í gær fórum við t.d. og keyptum fiskfars því ég var svo agalega lukkuleg með fiskibollurnar á föstudaginn. Ég hlakkaði þess vegna mikið til að fá fiskibollur í kvöldmatinn í gær og sá fyrir mér hversu girnilegur nestispakkann minn yrði í dag með restinni af kræsingunum. En þannig áttu hlutirnir nú ekki að fara hjá Dúnfríði dreka, nei ó nei. Ég byrjaði að steikja bollurnar þegar við komum heim en hvað gerðist? Þær festust allar við pönnuna svo það var gjörsamlega ómögulegt að snúa þeim! 20 mínútum síðar bar ég þess vegna á borð fyrir fjölskylduna einhvern þann ókræsilegasta kvöldverð sem ég hef á ævi minni séð; ofsoðnar kartöflur (aha, þær mislukkuðust líka...) og einhvers konar fiskiklatta sem héngu saman ef maður passaði sig að anda ekki á þá. Þetta var svo sorglegur matur að ég sat með tárin í augunum og Anna Dúfa vildi ekki sjá þennan vibba, hún sem hakkaði í sig bollurnar eins og glorsoltinn herforingi á föstudaginn! Pollýanna maðurinn minn borðaði 3 bollur og sagði "mmm, aldeilis ljúffengt!" og fékk sér meiri pakkasósu út á herlegheitin. Þetta var alveg nóg til að eyðileggja fyrir mér bróðurpart kvöldsins, vonbrigðin voru svona mikil, og auðvitað lofaði ég sjálfri mér því að ég skyldi aldrei, ég endurtek ALDREI aftur kaupa fisk í Danmörku! Ekki það, ég veit að ég mun fara aftur út eftir nokkra daga og kaupa fisk eða fiskfars því fiskibollur skal ég fá hvað sem það kostar! Ég er annars orðin svolítið hrædd um að þessar lýsingar á draugslegu lundarfari mínu undanfarnar vikur hafi hrætt vini mína og ættingja svo mikið að það muni ekki nokkur maður nenna/þora að bjóða okkur Hirti í heimsókn þegar við komum til landsins. Það er samt alveg óhætt, bara að vera með slökkvitækið uppi við ef eldhafið út úr drekanum skyldi verða of villt...
