Sýnir færslur með efnisorðinu barnseignarleyfi. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu barnseignarleyfi. Sýna allar færslur

þriðjudagur, desember 02, 2008

Gunnar 5 vikna og Anna Dúfa búin að finna sér jólaskó



Æ ég er einhverra hluta vegna ósköp löt við að blogga þessa dagana. Það gerist svo sem ekki margt krassandi en okkur líður mjög vel, bæði fullorðna fólkinu og ungviðinu. Dagarnir hjá okkur Gunnari ganga út á að sofa, drekka og skipta um bleyjur. Þegar ég les þetta þá þykir mér dálítið undarlegt að manni skuli ekki leiðast en ég held að það sé einmitt lykillinn að góðu barnseignarleyfi að vera ekki að gera sér einhverjar hugmyndir um það að dagarnir hjá manni verði eins klipptir út úr glamúrblöðum þar sem nýbakaðar mæður skella sér á kaffihús með börnin brosandi í barnavögnum í fansí litum, þær sjálfar með nýblásið hárið og pörfekt meiköpp, úthvíldar og ferskar ásamt vinkonum sínum sem eru allar jafn úberferskar ungbarnamæður. Virkar mjög beiskt en er það alls ekki, ég veit bara af fenginni reynslu að allar ferðir út fyrir heimilið verða ótrúlega tímafrekar þegar maður er með lítið barn. Í þau þrjú skipti sem ég hef farið með Gunnar í bæinn þá hefur það verið "VERKEFNI DAGSINS" sem hefur krafist hörkuskipulags. Ef maður hins vegar skrúfar væntingarnar niður á raunhæft plan þá fer maður að njóta allra litlu hlutanna í hinu daglega lífi. Þá verður allt í einu góður kaffibolli og skemmtilegur þáttur í sjónvarpinu um sögu verkalýðshreyfingarinnar í Danmörku að hápunkti dagsins, og ef litli prinsinn brosir eða hjalar til mömmu sinnar þá er barasta eins og jólin séu komin :) Ég ætla þess vegna að njóta þess alla aðventuna að vera sem mest heima á náttfötunum með ósmart hair-do ásamt brosmilda bangsanum mínum og drekka fullt af góðu kaffi og hlusta á jólalög á milli þess sem við fáum okkur kríu.

Gleðilega aðventu öll sömul!

mánudagur, nóvember 10, 2008

Gunnar 2 vikna...


...og lífið er ljúft hjá okkur familíunni í Kaupmannahöfn. Við erum enn að venjast því að vera 4 manna fjölskylda og enn er ekki komin nein rútína á dagana hjá okkur. Við höfum það þó fyrir fasta venju við mæðginin að leggja okkur þegar Anna Dúfa er farin á leikskólann og þá sofum við fram að hádegi. Þess utan sefur kappinn mjög mikið og er afar vær. Hann vakir venjulega í 1-2 tíma á nóttunni og það er ástæða þess að ég er oft ansi þreytt þegar ég vakna á morgnana. Ég vil samt halda fast í það að fara á fætur um leið og Anna Dúfa, þ.e.a.s. upp úr kl. 8, svo ég geti verið með henni þar til hún fer á leikskólann. Oftast næ ég að gefa henni morgunmat og klæða hana og stundum gefst líka tími til að teikna saman nokkrar myndir, yfirleitt "billa"=bíla, ef farið er að óskum litla bláeyga vörubílstjórans.
Annars er Hjörtur ennþá heima í barnseignarleyfi. Pabbarnir fá ekki nema 2 vikur eftir fæðinguna hér í Danmörku, en við fáum samanlagt eitt ár sem við megum skipta á milli okkar að eigin óskum. Ég verð heima þar til næsta sumar (skrýtin tilhugsun!), byrja að vinna aftur 1. júní eða 1. júlí og þá fer Hjörtur í ca. 2 mánaða leyfi. Hann mun þess vegna sjá um aðlögun Gunnars á vöggustofunni þegar þar að kemur. Ætli það verði ekki í ágúst, ég held að það væri mjög góður tími fyrir drenginn að byrja. Anna Dúfa var tæplega 7 mánaða þegar hún byrjaði og það var full ungt en það var bara ekki annað í boði fyrir okkur á þeim tíma. Hún kunni varla að sitja sjálf og var lítið hrifin af því að borða með skeið en þetta gekk nú samt allt saman upp og það hafa svo sem aldrei verið nein vandræði með hana. Ég hef hins vegar oft heyrt sögur af börnum sem hafa byrjað um 1 árs aldurinn eða síðar á leikskóla og þá eru þau orðin það gömul að þau átta sig á því að "nú eru mamma og pabbi að fara og ég verð skilin hérna eftir hjá þessu ókunnuga fólki, hjáááálp!", með tilheyrandi táraflóði. Það hlýtur að vera mjög erfitt, alla vega hef ég í þau fáu skipti sem Anna Dúfa hefur farið að gráta þegar ég kveð hana á morgnana, farið í vinnuna með hálf brostið hjarta :( Ég held þess vegna að það sé ágætt fyrir þess kríli að byrja svolítið fyrr á vöggustofu og vera þá frekar bara hálfan daginn til að byrja með.
************
Annars er plan vikunnar nokkuð fjölbreytt miðað við síðustu 2 vikur (ekki sagt af beiskju, tek það fram). Á miðvikudaginn kemur hjúkrunarfræðingur frá bæjarfélaginu að líta á drenginn. Við fengum sömu hjúkrunarkonu og þegar Anna Dúfa var lítil, ég bað um það sérstaklega því hún er svo fín manneskja og þar að auki alveg kasjúal gagnvart hundinum enda hundaeigandi sjálf. Ég hlakka mikið til að sjá hvað drengurinn er orðinn stór og þungur, mér finnst hann hafa stækkað mikið, ég veit ekki hvað þið segið um það?
Á fimmtudaginn fer ég svo í morgunkaffi í vinnunni og hlakka mikið til að sýna vinnufélögunum drenginn. Það var nú ekki búið að tala svo lítið um það hvað ég væri "gríðarlega bumbumikil", svo það verður gaman að sýna þeim svona ekta íslenskt víkingabarn sem slagar hátt í 5 kíló. Gott ef hann fær sér ekki bara rúnstykki með Dönunum og vel sterkt kaffi, svei mér þá.
************
Jæja, nú heyri ég hins vegar að litli kálfurinn er að rumska inni í rúminu sínu, best að fara að gefa honum. Þetta er náttúrulega engin hemja, drengurinn hefur ekki fengið svo mikið sem einn sopa að drekka í heilan klukkutíma svo hann er auðvitað orðinn glorhungraður! Svo var ég að bæta við nýjum myndum á barnaland, endilega kíkið!

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Gunnar 6 daga gamall


Jæja, akkúrat núna er vika síðan við Hjörtur lögðum af stað á spítalann og ég var þess fullviss að við yrðum send aftur heim. Þegar við komum á spítalann bað ég meira að segja Hjört um að geyma spítalatöskuna okkar í bílnum, því mér fannst ég virka svo husterísk að vera koma í skoðun með nánast enga verki og "vatnið örugglega ekkert farið" :) Ef ég hefði nú bara vitað að litli drengurinn minn yrði fæddur ca. 16 tímum síðar, ja hérna hér.

Hin nýja tilvera okkar hér á heimilinu gengur annars vel. Anna Dúfa hefur tekið breytingunum mjög vel en er samt búin að vera dálítið eirðarlaus alla helgina enda er hún vön að hafa athygli okkar beggja óskipta þegar við erum heima í helgarfríi. Nú þarf hún allt í einu að deila athyglinni með litlum bróður sem þar að auki er krefjandi á tíma mömmu hennar; þegar hann vakir þá er hann nánast stanslaust á brjósti og svo reyni ég að leggja mig þegar hann sefur. Í síðustu viku þegar Anna Dúfa var á vöggustofunni þá lagði ég mig í nánast hvert skipti sem hann lagði aftur augun en núna um helgina hef ég líka reynt að vera með Önnu Dúfu þegar hann sefur svo henni finnist ég ekki vera búin að gleyma henni gjörsamlega :( Ég held að þetta eirðarleysi í henni um helgina séu bara viðbrögð við breytingunum og það mun eflaust jafna sig fljótlega, hún er svo dugleg :)

Jæja, nú heyri ég að litli drengurinn er farinn að rumska enda búinn að sofa í 4 tíma. Hann fékk smá gulu en ekki nærri því eins mikið og Anna Dúfa enda er hann svo duglegur að drekka sem er víst eitt af því mikilvægasta til að lækna gulu. Ég ætla að fara að skipta á honum og gefa honum að drekka og svo ætla ég að skella mér í háttinn með honum þegar það kemst aftur ró á hann eftir ca. 1-2 tíma. Hafið það gott!