þriðjudagur, september 23, 2008

Nýtt hár óskast

Ég fann eina af fáum myndum sem ég á af mér með permanentið sem ég fékk mér fyrir 2 árum síðan. Ég er ennþá svolítið heit fyrir krullum, mig langar allra mest í krullur eins og á myndinni hér að neðan og reyndar litinn líka!


Hvað finnst ykkur? Myndi þessi hárlitur klæða mig vel, eða er of riskí að fá sér rautt hár þegar maður er með svona grænhvíta húð eins og ég (sælla minninga frá Grænlandi, ef þú lest þetta Birna)? Hvað með krullurnar; vitið þið um e-n sem hefur fengið sér svona permanent með GÓÐUM árangri?

Hér er annars myndin af mér sjálfri daginn sem permanentið var sett í mig, ég virka hreint ekkert ólukkuleg á myndinni en man að ég var ansi efins fyrsta daginn og það tók mig langan tíma að venjast þeim. Ég veit svei mér þá ekki hvað gera skal, what to do what to do?!
Allar reynslusögur og álit ykkar er vel þegið!