Oft hef ég eflaust kvartað undan of miklum hita hér úti en kommon, 36°C á hitamælinum kl. 8.45?! Það er náttúrulega bara bilun! Reyndar á móti sól en samt... það er ekki fallegt að gera ófrískum ísbirni þetta, ha?
Helgin var annars mjög góð hjá okkur familíunni. Við byrjuðum í e-u æði í síðustu viku að planleggja flutning Önnu Dúfu yfir í eigið herbergi. Reyndar held ég að ég hafi byrjað á þessu æði, til að vera hreinskilin, ég fór að skoða notuð barnarúm á netinu og fann eitt sem ég féll alveg fyrir og fyrst maður var byrjaður að planleggja rúmkaup þá var alveg eins hægt að kaupa líka handa henni lítið borð og stóla og fyrst maður var nú komin í Ikea á annað borð þá var líka alveg eins hægt að kippa með sér eins og einu veggteppi og viti menn, var þá ekki til gólfmotta í stíl og og vegglampi og sængurföt og... Nokkrum dögum síðar var Anna Dúfa þess vegna komin með eigið herbergi og nú eru öll leikföngin hennar þar inni í leikfangakössum á hjólum en ekki í ljótum stórum trékkassa inni í stofu. Hún er búin að sofa 2 nætur í nýja rúminu sína, fyrri nóttina svaf hún vært til kl. 8 um morguninn en í nótt vaknaði hún kl. 3 og vildi alls ekki sofna aftur svo hún endaði uppi í rúmi hjá okkur og var síðan flutt yfir í gamla rúmið sitt þegar hún sofnaði. Þetta á kannski eftir að taka smá tíma og þess vegna er bara ágætt að vera byrjaður strax á því að venja hana við nýtt herbergi og rúm. Rúmið hennar er annars ofsalega fallegt og praktískt um leið. Það er hægt að lækka aðra rimlahliðina og einnig taka hana alveg af. Það verður sniðugt eftir svona 1-2 ár en enn sem komið er finnst okkur hún of mikið baby fyrir venjulegt barnarúm. Svo fann ég gamlar ljótar furuvegghillur uppi á háalofti og ansi sætar hillufestingar sem ég var búin að gleyma að væru til og fór í málningarvöruverslun og keypti litaprufu á heilar 39 krónur sem ég málaði hillurnar með og útkoman varð bara ansi sæt. Hérna eru nokkrar myndir af afraktstri helgarinnar.

Nú, annars er fátt á döfinni hjá okkur annað en að lifa þessa ótrúlegu hitabylgju af. Það á víst að fara að rigna á sunnudaginn, thank God for that! Ég var annars að átta mig á því að ég á eftir að vera rétt rúma 2 mánuði í vinnu, þá fer ég í barnseignarleyfi. Síðast fór ég ekki í leyfi fyrr en þegar Anna Dúfa fæddist en núna fer ég líklega 1. október eða aðeins seinna. Mér finnst það samt svolítið skrýtið, ég veit ekki hvað ég á af mér að gera í 3 vikur. Ég reikna hálfpartinn með því að eignast drenginn í kringum settan dag, 23. október, en svo getur það auðvitað dregist fram í nóvember þess vegna! Ætli maður verði samt ekki bara fegin að geta hvílt sig og safnað kröftum? Það má þá alltaf þrífa eldhússkápana manískt á milli þess sem maður leggur sig.
Jæja, nú ætla ég ekki að stelast meira svona í vinnutímanum, skyldan kallar. Hafið það gott öll sömul, nær og fjær! Vil líka minna á að það eru komin tvö ný albúm á síðunni hennar Önnu Dúfu!

|