miðvikudagur, apríl 02, 2008

Lúxusvandamál nr. 2 í þessari viku

Fyrra vandamál mitt gekk út á hárið, átti ég að halda síddinni eða láta stytta? Það leystist með því að láta hárgreiðslukonuna ráða för-hún valdi að stytta það töluvert. Vandamál nr. 2 er val á gleraugum. Nú hef ég ákveðið að láta á það reyna hvort ég get ekki leyst það vandamál á jafn auðveldan hátt og þetta með herdúið og ætla því að biðja ykkur að segja mér álit ykkar á þessum brillum. Hvort finnst ykkur fallegra stell; kúlu- eða blóma-?