Svona leit litla krílið okkar út í sónar í gær. Já, þá er ég sem sagt búin að opinbera það að ég er ólétt og á að eiga, samkvæmt sónarnum í gær, 23. október. Ég held að ég sé búin að segja ykkur flestum sem lesið þetta blogg, þessar góðu fréttir en ef einhver af mínum tryggu lesendum fréttir þetta hérna þá er það ekki vegna þess að ég hafi GLEYMT ykkur. Ég hef bara afskaplega lítið verið á msn og svoleiðis að undanförnu, mér finnst það óttalegur tímaþjófur í vinnunni og á kvöldin finnst mér svo næs að gera eitthvað allt annað en að sitja við tölvuna þegar maður hangir fyrir framan þetta járnarusl allan daginn í vinnunni.En aftur að sónarnum. Þetta var sem sagt hinn svokallaði 12 vikna sónar þar sem hnakkaþykktin er mæld og blóðprufa er tekin úr mömmunni (mér sem sagt, haha). Út frá þessu eru líkurnar á litningagöllum síðan reiknaðar út. Þessi líkindareikningur kom mjög vel út og litli unginn var auðvitað bara dásamlegur, fínn hjartsláttur og heili, full þvagblaðra og þarmar og svo sáum við barnið hreyfa hendurnar en að öðru leyti var það nokkuð rólegt. Svo er komið nýtt sónartæki á spítalann (sami spítali og Anna Dúfa fæddist á, var svo ánægð með dvölina þar síðast) þar sem hægt er að taka þessar fínu þrívíddarmyndir. Við bjuggumst alls ekki við því að fá svoleiðis fínerí og vorum alsæl með þessar fallegu myndir sem við fengum. Á myndinni hérna fyrir ofan sést litla rófan (ég held sem sagt að þetta sé stelpa) halda sér í naflastrenginn en það er víst mjög vinsælt hjá þessum krílum af því að það er púls í naflastrengnum-brjálað stuð sem sagt!
Jæja, ætli ég fari þá ekki að vinna. Ætla að nýta tímann vel í dag svo ég geti farið snemma heim á morgun því eins og ég sagði ykkur í síðustu færslu þá fæ ég dásamlega gesti í kvöld, Arngunni og Brynhildi. Góða ferð stelpur mínar og ég hlakka til að sjá ykkur!
Knús yfir hafið og út um allan heim á ykkur öll!

|