miðvikudagur, mars 26, 2008

Vorum að hugsa um að kaupa okkur rúm...

...en við hættum við það. Draumarúmið mitt var þetta efsta skrýtna (sjá færsluna hér að neðan) en Hjörtur var ekki nógu hrifinn af því og þótt ég hefði svo sem getað kjaftað þetta rúmskrípi inn á hann þá kunni ég nú ekki við það, ha? Kallgreyið, það væri nú ekkert skemmtilegt fyrir hann að sofa í ljótu rúmi og fara með hroll niður eftir bakinu upp í rúm á hverju kvöldi og fá martraðir þar af leiðandi og vakna upp grátandi á hverjum morgni. Ég sá þetta fyrir mér. Við ætlum þess vegna að bíða með rúmkaup enda ekkert aðkallandi svo sem, bara æði í mér því mig langaði í þetta sólgula prinsessurúm (hlandgula eins og móðir mín smekklega orðaði það, fannst það sem sagt ekkert mjög smart...) og skelltum okkur í staðinn á uppþvottavél! Hljómar svolítið eins og við höfum verið með einhvern eyðslukláða í lófunum og bara orðið að spreða peningunum í eitthvað, ef ekki rúm þá bara... ööööh... hugsihugsihugs... uppþvottavél!!!?? En þetta var svona án gríns eitthvað sem okkur fannst orðið vanta virkilega á heimilið, við gerum ekkert annað en að vaska upp, minnst x3 á dag ofan á öll hin heimilisstörfin og oft finnst okkur við ósköp lítið geta sest niður. Þetta er náttúrulega algjör lúxus, að hafa uppþvottavél og við getum ekki beðið eftir að fá hana á miðvikudaginn í næstu viku. Hún skiptir um pláss við þvottavélina og sú maddamma fer inn á baðherbergi.

Keyptum okkur annars líka brauðvél á tilboði, við erum svo miklir sökkerar fyrir tilboðum og erum alveg týpurnar sem föllum fyrir "extra ódýrt bara í dag!"-vörum sem standa við kassana, þið vitið. Þetta er sem sagt Kenwood brauðvél með þremur mismunandi stillingum (?), bara ansi pen að sjá og kostaði 350 kall. Nú ætlum við að prófa að skella í eitt brauð hjónin og vita hvernig þetta virkar. Ef þið vitið um góðar brauðvélauppskriftir þá megið þið endilega láta mig vita.
Jæja, nú er HJ kominn heim úr búðinni með hveiti og ger og svona stöff til að setja í nýju maskínuna, ekki uppþvottavélina heldur hina sko...
Kveðja
Tóti tækjafrík