sunnudagur, mars 09, 2008

Löngu komin heim frá Grænlandi

Ferðin til Grænlands gekk vel og ég er auðvitað löngu komin heim, óétin af ísbjörnum og allt í góðu. Það var ekki eins erfitt og ég hélt að vera svona aðskilin Önnu Dúfu, en ég held því miður að þetta hafi reynst henni erfiðara en ég bjóst við. Fyrstu tvo dagana kallaði hún víst mikið á mig og var almennt dauf í dálkinn en tók gleði sína á ný á þriðja degi. Ég kom svo heim á mánudagskvöldi og á þriðjudeginum vorum við saman heima mæðgurnar. AD brást öðruvísi við heimkomu minni en ég hafði búist við, hún varð óskaplega feimin þegar hún sá mig og ætlaði varla að þora að líta á mig. Svo var hún voðalega lítil í sér og mikil mús fram eftir degi, ég mátti ekki láta hana frá mér og varð til að mynda að pissa með hana í fanginu! En svo lagaðist þetta nú en í svona tvo daga á eftir var ún mjög viðkvæm fyrir öllum kveðjustundum, hvort sem það var pabbi hennar að skjótast út í búð eða ég að fara á klósettið :D Allt sem fól í sér að fara inn eða út um einhverjar dyr og loka þeim á eftir sér virtist fara illa í hana :(
Fyrirlesturinn á Grænlandi gekk glimrandi vel þó ég segi sjálf frá og ég fékk hrós frá ýmsum aðilum, flest eitthvað fólk sem ég hef aldrei séð áður en fannst efnið hljóma spennandi, "nýting á fiskúrgangi til framleiðslu methanóls". Svo fór ég á gönguskíði en það var hins vegar svo ofboðslega kalt að við lögðum ekki í hundasleðatúr. Reyndar var lokað á hundasleðaskrifstofunni þegar ég og samstarfskona mín ætluðum að panta okkur túr og sökum kuldans nenntum við ekki að leita uppi fleiri skrifstofur. Það gefst kannski tækifæri til að prófa þetta seinna, iss piss. En sem sagt, góð ferð en alltaf lang best að koma aftur heim.
Nú er ég farin að brjóta saman þvott og horfa á sjónvarpið. Góða helgarrest öll sömul!