föstudagur, febrúar 15, 2008

Nýtt dú?

Ok kæru vinkonur. Þetta verður einhver sú mest sjálfmiðaða færsla ever en mig vantar hjálp ykkar. Viljið þið þess vegna vera svo vænar að kvitta og segja mér ykkar álit. Ég er nefnilega í smá valkrísu. Þannig er að ég hef aldrei verið með eins sítt hár og núna, var t.d. ekki ein af þeim sem safnaði hári fyrir ferminguna og var aldrei með svona sítt stelpuhár. Undanfarin ár hef ég verið að safna og látið smástelpudrauminn rætast. Samt finnst mér ég hálf drungaleg með svona sítt hár (sjá mynd hér að ofan þar sem ég reyndar hafði ekki greitt mér í marga daga, virðist vera) og er lengi búin að vera að pæla í því að fá mér nýtt "dú". Draumadúið er eitthvað í þessa áttina:

Mér finnst þetta voðalega stelpulegt og frísklegt en er ekki alveg sjúr á því að þetta klæði manneskju með múnfeis. Aftur á móti er þetta náttúrulega bara hár sem vex aftur svo þetta skiptir kannski ekki miklu máli? Ég er bara svo hrædd um að fara og láta klippa burtu allt hárið sem ég er búin að vera svo lengi að safna og standa svo skelfingu lostin fyrir framan spegilinn um kvöldið og hugsa "Ó mæ god! Hvað er ég búin að gera?!" Hvað segið þið? Á ég að bíða eða kýla (á'ða)?