...síðan Anna Dúfa fæddist! Ég fékk fyrstu hríðina kl. 8 um morguninn og tæpum 15 og hálfum tíma síðar, kl. 23.23, fæddist hún litla ljósið mitt. Aldrei á ævinni hef ég upplifað aðra eins gleði og aldrei hef ég séð Hjört eins hrærðan og hamingjusaman í senn og aldrei hefur líf okkar verið eins innihalds- og gleðiríkt og þetta fyrsta ár með Önnu Dúfu hefur verið. Til hamingju með afmælið á morgun, elsku Anna Dúfa mín.
Þín mamma, svolítið tárvot í tilefni dagsins
Þín mamma, svolítið tárvot í tilefni dagsins


|