föstudagur, nóvember 17, 2006

Jólagjafaóskalisti Ragnhildar 2006

Venjulega er óskalistinn hjá mér proppfullur af einhverjum fötum sem mig dreymir um, en ekki þessi jólin sökum þess hve bosmamikil ég er orðin. Og þó, ég er búin að sjá ýmislegt fallegt sem þarf ekkert að komast yfir bumbuna, eins og gríðarlega fallega grófprjónaða vettlinga úr HM með afar löngu stroffi, flatbotna stígvél úr Bianco, stórar og stæðilegar töskur úr Friis og Co sem til dæmis mætti nota sem bleyjutöskur! Svo langar mig líka í fallegt sjal, stórt og gott, gjarnan dökkdökkblátt eða piparmyntugrænt. Vettlingarnir og sjalið eru nauðsynlegir í göngutúrana með beibíið í vetrarkuldanum og stígvélin eru auðvitað bara möst því ég á ENGA skó og ekki get ég gengið um berfætt í snjónum með barnavagninn, ha? Þar að auki eru þessi umtöluðu stígvél ekki bara guðdómlega falleg og smart heldur eru þau líka afskaplega praktísk, verandi svona flatbotna. Svo langar mig í einhverja virkilega góða bók. Gefur Arnaldur Indriðason ekki út neina fyrir þessi jól? Ef svo er þá fer sú bók efst á listann. Ásamt vettlingunum. Og stígvélunum. Og töskunum! Ég set hér inn myndir af töskunum tveimur sem mig dreymir um. Þið megið gjarnan láta mig vita ef þið hafið séð þær einhvers staðar í búðum á Íslandi eða í Danmörku, eða þekkið jafnvel einhvern sem á svona og langar að selja þær í snatri! Ja hérna hér, og ég sem ég hélt að óskalistinn í ár yrði tómur en nei, ekki aldeilis og svei mér þá ef hann á ekki eftir að lengjast í annan endann eftir því sem nær dregur jólum...

Ó já, svo langar mig líka í þessar buxur. Gætu verið ansi smartar þegar óléttutonnið fer (vonandi) af manni. Ciao og góða næstum-því-aðventu-helgi