Eitthvað er nú farið að kólna á nóttunni og morgnana finnst mér og þar sem Þórður húsvörður er ekki enn búinn að kveikja á kyndingunni hjá okkur, þá er bara hreint ekkert næs að fara fram úr þessa dagana, skal ég segja ykkur.
Annars gengur allt vel; lokaverkefnið gengur full hægt en ég hef samt engar áhyggjur af því. Ég á að skila því í lok desember, svo ég hef enn tæpa þrjá mánuði til stefnu. Svo þarf ég að skila klósettverkefninu 1. desember; það hefur nú ekki gengið alveg þrautalaust, búin að koma upp alls kyns vandræði með þetta blessaða klósett og farið ansi mikill tími í alls kyns reddingar sem getur verið dálítið snúið þar sem ég er staðsett í Danmörku en klósettið á Grænlandi! Ég held samt að þetta sé farið að ganga betur núna, ég vona alla vega það besta.
Ég held annars að ég hafi aldrei verið eins þreytt á því að vera í skóla og akkúrat núna, ég get hreinlega ekki beðið eftir að klára og komast í langþráð mömmsu-orlof. Mér finnst ég ekki hafa tekið mér frí í mörg mörg ár, sem ég reyndar hef ekki gert þar sem ég hef verið í skóla nánast óslitið síðan ég var 6 ára og frá 16 ára aldri hefur maður eins og allir Íslendingar, unnið fulla vinnu á hverju sumri. Það er dálítið skrýtið að hugsa til þess að eftir 4 mánuði er námið bara búið (vonandi!) og við Hjörtur komin í fæðingarorlof. Mjög næs tilhugsun.
Plön helgarinnar eru annars þau, að ég ætla að hitta stelpurnar sem voru með mér úti á Grænlandi annað kvöld og á laugardaginn förum við Hjörtur í skógarferð með hundaskólanum hennar Söshu og öllum nemendum skólans; sem sagt skógarferð með hundum af öllum stærðum og gerðum og eigendum þeirra. Eftir það ætlum við jafnvel að skreppa í Ikea og kaupa okkur ný húsgögn í svefnherbergið okkar og hver veit nema við málum herbergið í næstu viku. Aldrei að vita. Eruð þið annars með einhverjar tillögur að lit? Mig langaði agalega mikið að mála það ljósbleikt en Hjörtur fór að gráta við þá tillögu mína svo mér datt í hug ljós-rjómagult. Hvernig væri það?
Jæja, ætli sé ekki best að koma sér að verki svo ég sitji nú ekki uppi með þessi verkefni fram á vor!
Ég set svo inn nýjar myndir fljótlega frá hinni dásamlegu heimsókn Helgu frænkuvinkonu og Gunnari kærastanum hennar, og kannski koma líka myndir af splunkunýju svefnherbergi í krassandi lit!

|