Síðan mín var búin að vera lokuð í marga daga eða alla vega birtist mér bara hvítur skjár þegar ég reyndi að komast inn á hana en nú virðist þetta vera komið í lag. Ég hef annars ekki margt spennandi um að skrifa enda nokkurn veginn nýbúin að setja inn fréttaskýrslu af familíunni von Vedbæk. Jú annars, einar fréttir hef ég að færa; mamma og pabbi ætla að koma í heimsókn um helgina. Ég var svo heppin í gær að næla mér í miða fyrir þau á "2000 sæti á 2000 krónur"-tilboðinu hjá Iceland Express og þau koma á sunnudaginn og verða fram á miðvikudag. Við ætlum ekki að fara í neinar heavy túristaferðir, förum kannski í bæinn á þriðjudaginn og skoðum okkur aðeins um og förum á eitt kaffihús. Annars held ég að við höldum okkur hér heima fyrir og höfum það næs, förum út að labba með hundinn (sem borðaði Skype-heyrnatólin mín í dag og ansi fína hárspöng í gær) og ef sólin heldur áfram að skína þá grillum við kannski.
Jæja, ég held svei mér þá að ég leggi mig í hálftíma eða svo. Kannski klukkutíma. En ekki lengur. Ekki mikið lengur alla vega.
Góða hvítasunnuhelgi.

|