sunnudagur, maí 07, 2006

Sumarið er komið

Nú er komið sumar í DK með tilheyrandi hitastigi nálægt suðumarki og blómstrandi runnum, fiðrildum og maurum á baðherberginu. Í gær var tiltektardagur í sameiginlega garðinum hjá húsinu okkar, raðhús með fimm íbúðum fyrir þá sem ekki vita. Við tókum beðin í gegn og slógum grasið og svo settum við upp svona hænsnanet fyrir litla prívat garðinn okkar svo blessaður ferfætlingurinn þarf ekki lengur að vera bundinn úti í garði heldur getur hann valsað inn og út án þess að við þurfum að vakta hann. Talandi um heimilisdýrið; ég held að hún hati kryddjurtir, því í hvert skipti sem ég lít af henni úti í garði þá flýtir hún sér að grafa upp minnst eina jurt eða terrorísera þetta litla beð mitt á e-n annan hátt. Kannski hatar hún ekkert kryddjurtir, kannski finnst henni bara gaman að sjá mig koma askvaðandi, skrækróma af æsingi "Sasha!!! Hvað ertu búin að gera við rósmarínið/timíanið/blessaða sítrónumelissuna sem ilmar svo vel? Arg garg!!" Svo beygi ég mig stynjandi og dæsandi yfir beðið og laga það til og kem jurtunum aftur fyrir á sinn stað og lít svo hneyksluð á hinn svarta málleysingja þar sem hann situr með eyrun uppglennt eins og tvö stór jöklatjöld og þykist hvergi hafa komið nálægt eyðileggingunni. Svo fer ég inn aftur eftir að hafa sent dýrinu nokkur vel valin skammarorð... og um leið og ég er komin inn þá hendir hún sér óð af gleði yfir beðið og rífur eins og einni jurt eða tveimur upp með rótum! Almáttugur en sú mæða að eiga svona börn, ha??
Jæja, annars erum við bara búin að hafa það næs í dag; ég sat úti í garði áðan í ljótustu stuttbuxum sem sögur fara af og las skýrslu um tilraunir á þurrklósettum hér í DK. Mjög sumarlegt lesefni finnst mér. Svo fer ég í skólann á morgun og á þriðjudaginn og þá er bara komið upplestrarfrí, og reyndar síðasta upplestrarfríið mitt á háskólagöngunni-ég var bara að fatta það núna! Ég fer í tvö próf, ökotoksikologi 18. maí og jarðvegs-og grunnvatnsmengun 29. maí. Svo fer ég í fyrri Grænlandsferðina í lok júní og verð í ca. 10 daga, og hina seinni í lok júlí fram í lok ágúst. Eftir það ætlum við að fara í stutt frí til Íslands áður en við hellum okkur út í lokaverkefnisskrif af fullum krafti. Ja hérna hér, það fer svei mér þá að styttast í að við klárum skólann... hvað á maður þá að gera?? Það kemur í ljós síðar, nægur tími til að hugsa um það.
Nú ætla ég út að læra meira og svo þarf ég að skella mér í sjáer og gera mig vakkera fyrir Radiohead tónleikana í kvöld! Have a nice sunnudag öll sömul :)