fimmtudagur, maí 18, 2006

Engar fréttir...

...eru góðar fréttir. Er það ekki oft sagt? Héðan er alla vega fátt að frétta annað en að við erum í prófum og líður alveg prýðilega. Við fórum í fyrstu próf í dag bæði tvö og gekk bara vel. Það er annars ekki komið sumar í Danmörku, það er ekki lengur 25 stiga hiti og hefur ekki verið síðastliðna viku. Í dag byrjaði að rigna og nú rignir og rignir og rignir, sem er svo sem ágætt þegar maður þarf að sitja inni og lesa. Það er oft dálítið stressandi andrúmsloft sem fylgir sól og sumarblíðu, finnst ykkur það ekki? Allir drífa sig út að taka til í görðunum og grilla (við fórum t.d. og keyptum okkur þetta fína grill með áföstum hillum og körfum undir áhöld, gasalega fínt) og börnunum er hent út í litlu uppblásnu sundlaugarnar, en á meðan situr maður sveittur inni að lesa fyrir próf, bæði sveittur af hita en þó aðallega af angist yfir að geta ekki tekið þátt í sumargleðinni! Mér finnst alltaf eins og það sé skrifað í skýin (eða skýjaleysið) á góðviðrisdögum, "Ragnhildur, drífðu þig út í bleiku stuttbuxunum þínum og ermalausa bolnum og farðu í frisbí úti í garði og drekktu límonaði og reyndu að næla þér í svolítla brúnku..." en í staðinn sit ég sem fastast yfir bókunum og þetta gerir mann auðvitað snar-bilaðan! Niðurstaðan er því þessi: Sól gerir mann geðveikan. Rigning heldur manni niðri á jörðinni.

Annars ætla ég að taka mér frí í dag frá lestrinum enda ekki nema eitt próf eftir þann 29. maí. Ætli ég byrji ekki að læra á morgun til að hafa nægan tíma. Svo held ég svei mér þá að Eurovision sé í kvöld, er það ekki annars? Ég get þá gleymt mér aðeins yfir þeim skemmtilegheitum þar sem það er hellidemba og engar kröfur gerðar til útivistar og almenns hressleika. Annars ætla ég bara að brjóta saman þvott, ég held restina af deginum, magnið af þvotti er þvíumlíkt... er Pétur föndrari nokkuð farinn að lauma sér inn í þessa færslu? Þá verð ég strax að taka um léttara hjal!

Ég get annars sagt ykkur frá því að Helena, Jöri og Bryndís Pálína álfaprinsessa komu í mat til okkar á sunnudaginn var. Þau voru í stórborginni yfir helgina og ákváðu að koma til okkar í heimsókn. Þau færðu okkur þessa líka fínu gjöf; íslensk slúðurblöð, súkkulaðirúsínur frá Nóa&Síríus (sem eru búnar fyrir löngu) og Appoló lakkrís (sem er líka búinn) ásamt gasalega góðu kaffi frá Kaffitári! Við Hjörtur erum búin að liggja yfir slúðurblöðunum á hverju kvöldi, liggjum hvort á okkar helmingi rúmsins og lesum þegjandi, stóreyg af spenningi. Kaffið flýtti ég mér að setja í frysti og laga svo alltaf eina pressukönnu á morgnana af ilmandi fersku kaffi. Mmmm! Takk fyrir okkur :) Heimsóknin heppnaðist bara ansi vel, en eitthvað átti Sasha erfitt með að taka Bryndísi Pálínu í sátt. Við höfum nefnilega komist að því að hún er ansi hrædd við börn á hennar aldri, þ.e.a.s. frá ca. 1-4 ára. Eldri börn er hún ekki hrædd við, en hún verður ansi nervus í kringum svona lítil börn. Mig grunar að okkur hafi kannski ekki verið sagt alveg satt og rétt frá hvað varðar þennan þátt í atferli hennar, því við spurðum að sjálfsögðu hvort að hún væri barngóð-við ætlum nú ekki að vera barnlaus for ever! og konan sem passaði Söshu (áður en við fengum hana) sagði okkur að henni og syni hennar sem væri 3 ára kæmi mjög vel saman og hún skipti sér ekkert af því yngra sem þá var 10 mánaða. Þetta skipti okkur auðvitað mjög miklu máli og vorum þess vegna ánægð að heyra þetta. Hins vegar hefur hún síðan við fengum hana, sýnt þessa sömu hegðun við nánast öll smábörn, hún verður nervus og byrjar að gelta sem er auðvitað mjög hvimleitt! Þess vegna er ég farin að halda að hún hafi alltaf verið svona en konan hafi hreinlega ekki viljað segja okkur frá því, vitandi það að ungt fólk myndi tæplega taka að sér hund sem væri hræddur við börn. Ég vona bara að þetta eldist af henni og hún læri það one fine day þegar maður sjálfur eignast börn, að þau eru hreint ekkert hættuleg þessi grey.

Jæja, þá er komið að þvottinum og kannski örlitlu sjónvarpsáhorfi.
Kveðjur úr rigningunni í landinu flata...