...var svooo huggulegur! Sólin skein og ekki eitt ský á himni og ég eyddi öllum deginum úti í garði. Ég settist niður í sólinni um hádegi og byrjaði að hreinsa upp arfa á milli hellnanna, bara til að gera eitthvað, en svo gat ég ekki hætt og klukkan fjögur var ég búin að hreinsa alla stéttina! Svo ákvað ég fyrst ég var byrjuð, að hreinsa beðin líka. Ekki að það séu 25 beð í 10 fermetra garðinum, en það eru þó tvö. Annað þeirra er undir svefnherbergisglugganum okkar og það hefur verið hálf druslulegt í vor og ég var meira að segja að hugsa um að rífa allt úr því og byrja bara upp á nýtt, setja rósarunna þar eða jafnvel ferskjutré! Ég hætti hins vegar við þau plön þegar nágranni okkar sagði mér í dag að þetta "drasl" sem væri í beðinu, væri timian, rósmarín, graslaukur og lavenderjurt. Svei mér þá, er hægt að vera svona ljóshærð, að taka ekki eftir því að ég væri með minn eigin litla matjurtagarð undir svefnherbergisglugganum? Það hefur alltaf verið draumur minn að eiga matjurtagarð og svo wúpsí! eignaðist ég einn slíkan án þess að taka eftir því og var næstum því búin að fara með gröfuna á'ann! Alla vega, ég var svo lukkuleg með þetta að ég fann til fræin sem ég hafði keypt um daginn og setti niður sem sagt gulrótafræ og maísfræ. Svo ætla ég að kaupa mold eftir helgi og setja niður strengjabaunir í stóra bambuspotta sem ég keypti um daginn, gazalega lekkera. Svo er ég að hugsa um að kaupa ferskjutré og setja í hitt beðið (það eru tvö beð, þið munið...) og það væri líka lekkert að setja kirsuberjatré við hliðina á því. Og já, radísur ætla ég líka að setja niður í pott. Minn heitasti draumur er samt að búa mér til eitt lítið beð og setja niður fáeinar kartöflur. Ég veit. Ég er sveitamaður!
Talandi um huggulega daga. Minnir mig á að dagurinn í gær var ekkert svo huggulegur. Ég verð afskaplega sjaldan reið við vinnu- eða skólafélaga mína, það hefur án gríns gerst í teljandi fá skipti en í gær varð ég alveg fox-hoppandi-ill við tvær stelpur sem ég er með í hóp í skólanum! Mér finnst svo vont að verða svona reið, ég verð svona þegjandi og reyni að setja upp pókerfeis svo enginn sjái að ég sé reið en tekst það samt ótrúlega illa! Æi, ég nenni samt ekki að skrifa um svona leiðindi. Dagurinn endaði vel, við fórum á Íslendingagrill í samkomuhúsinu hérna á kollegíinu og sátum til rúmlega 2 í nótt (ein geðveikt wild) og spiluðum Trivial. Mjög skemmtilegt. Nú ætla ég hins vegar að reyna að læra svolítið. Kannski ég skelli mér fyrst í sjáer og setji á mig brúnkukrem og lakki á mér neglurnar. Er það ekki dálítið gott plan? Held það... heyrumst síðar amigos!

|