þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Í tilefni Valentínusardagsins...

...hef ég safnað saman öllu því besta sem ég á af uppáhaldinu mínu David Hasselhoff. Uppáhaldið mitt prívat og persónulega, er Hasselhoff the Eskimo! Mér fannst rétt að gefa ykkur vinkonum mínum (stærsta hluta lesendahópsins) svona augnakonfekt, nei, eiginlega augna-gúff, í Valentínusargjöf. Gjörið þið svo vel kæru vinkonur!
Og hér kemur rúsínan í pylsuendanum: Dásamlegt myndband með goðinu sem Helga frænkuvinkonumús fann handa mér og sendi mér í Valentínusargjöf. Njótið vel!