þriðjudagur, janúar 31, 2006

Enn einn bloggleikurinn

Ég er alltaf dálítið hrifin af svona bloggleikjum; þennan sá ég á blogginu hennar Arngunnar, og mér skilst að þið lesendur góðir, eigið að "kópera" spurningarnar hér fyrir neðan og "peista" þær inn í athugasemdirnar og þar eigið þið sömuleiðis að svara þeim. Ef þið viljið þá getið þið sett þessar spurningar inn á eigin bloggsíður og þar svara ég spurningunum. Skiljið þið þetta? Pínku flókið en við reynum að leysa þessa erfiðu þraut í sameiningu. Allir saman nú!

  • Hver ert þú?
  • Erum við vinir?
  • Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
  • Ertu hrifin/nn af mér?
  • Langar þig að kyssa mig?
  • Veldu gælunafn fyrir mig og útskýrðu afhverju þú valdir það.
  • Lýstu mér í einu orði.
  • Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
  • Líst þér ennþá þannig á mig?
  • Hvað minnir þig á mig?
  • Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
  • Hversu vel þekkir þú mig?
  • Hvenær sástu mig síðast?
  • Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
  • Ætlar þú að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?