Árið 2005 var ansi viðburðarríkt og skemmtilegt ár en hér er það sem stendur upp úr:
- Fluttum til Kaupmannahafnar eftir 3½ árs viðveru í Álaborg og byrjuðum bæði í framhaldsnámi. Mér leiddist dálítið í skólanum fyrstu vikurnar og saknaði vinanna við Álaborgarháskóla en eftir að hafa lært að rata á klósettin og í matsalinn þá fór ég að kunna betur við mig og líður núna afskaplega vel í nýja skólanum og er búin að eignast góðar og skemmtilegar vinkonur, bæði íslenskar og danskar :)
- Bjuggum á 3 stöðum á árinu, hjónaleysin; bjuggum fyrstu daga ársins í Álaborg, fluttum svo til Birkerød í ágætis íbúð en hún var uppi á 3. hæð og án svala og svo var stigagangurinn ansi ljótur... fyrir mánuði síðan fluttum við svo í nýju fínu íbúðina okkar sem er bæði stór, falleg og með garði :) Hérna eigum við vonandi eftir að vera lengi og ég held að okkur muni líða mjög vel hérna.
- Fórum til Íslands í sumar og unnum í 3 mánuði og ferðuðumst svolítið um landið og ég hitti allar vinkonur mínar og fjölskylduna.
- Fengum fleiri gesti á árinu heldur en öll árin okkar í Álaborg. Gestir ársins voru: Helga frænka, Abba, mamma og pabbi, Arngunnur og Valli, mamma hans Hjartar, Dagný og að lokum komu mamma og pabbi aftur í heimsókn yfir jólin og fóru ekki heim fyrr en á nýja árinu, og voru þess vegna líka fyrstu gestir ársins 2006 :)
Þetta er svona það helsta sem ég man eftir og ég finn það á mér að þetta ár muni verða jafn skemmtilegt og viðburðarríkt, ef ekki viðburðarríkara!

|