fimmtudagur, desember 15, 2005

Hugmyndasamkeppni

Nú þarf ég á hjálp ykkar að halda, kæru lesendur. Þannig er mál með vexti að ég á að skila verkefni 20. desember sem gengur út á að bæta núverandi lagnakerfi í ákveðnu íbúðahverfi á Fjóni. Í verkefninu eiga nemendur áfangans að ímynda sér að þeir vinni hjá ráðgjafarfyrirtæki, og að þeir séu að taka þátt í keppni og svo mun einhver einn nemandi og hans verkefni vinna keppnina :) Það er nú reyndar engin verðlaun, bara þau sem eru fólgin í því að fá góða einkunn (oj, kúristinn! pjúk..). EN, mig vantar sem sagt nafn á hið ímyndaða ráðgjafarfyrirtæki. Nafnið má mjög gjarnan minna á Ísland og eitthvað sem tengist bættu umhverfi. Mér datt í hug Geysir Consulting, og svo stakk einn góðvinur minn upp á nöfnunum Ice-Sewers og Sewers on Ice, en það er of mikið svona æpandi SKÓLPLAGNIR! Það má gjarnan vera eitthvað svona grænt og prófessjónalt. Endilega, komið með tillögur krakkar mínir. Ég er alveg heiladauð þessa dagana..