sunnudagur, nóvember 20, 2005

Flutningar nálgast...

...og við erum ekki búin að pakka einum einasta hlut niður í kassa. Við fáum lyklana á föstudaginn og ætlum síðan beint heim að pakka og náum vonandi að klára allt á föstudeginum því planið er að flytja á laugardaginn. Stóri bróðir hans Hjartar sem býr ásamt fjölskyldu hér í Köben, ætlar að lána okkur bílinn sinn svo við getum farið og leigt stóra lokaða kerru á einhverri bensínstöð og flutt dótið. Annars höfum við takmarkaðan tíma til að taka aftur upp úr kössunum í nýju íbúðinni því við þurfum að skila ýmsum verkefnum og ég þarf að vera með kynningu á einu stuttu verkefni sem ég er að gera ásamt 3 dönskum stelpum, og þegar þessari verkefnavinnu lýkur tekur próflestur við. Ég fer í tvö strembnustu prófin 12. og 13. desember og ætla lesa á mig gat þangað til! Ég held svei mér þá að ég pakki fartölvunni bara niður í tösku og láti mig hverfa af netheimum þar til þessi tvö próf eru yfirstaðin.
Eftir þessi tvö próf ætla ég síðan að taka mér frí í einn dag og taka upp úr kössum og hengja upp jólaskraut og svona (músastiga og fleira smart sem ég verð búin að dunda mér við að föndra). Svo held ég bara áfram að lesa fyrir síðustu prófin sem ég fer í 20. og 21. des. Fyrra prófið er krossapróf sem ég leysi á netinu og þennan sama daga þarf ég líka að skila ritgerð í sama fagi. Svo fer ég í eitt skriflegt próf 21. desember, og ÞÁ ERU KOMIN JÓL Í KJUPENHAVN! Mamma og pabbi koma sama kvöld og verða hjá okkur fram yir áramót. Þetta verður án efa afskaplega huggulegt, og það sem ég hlakka mest til er að upplifa stresslaus jól án samviskubits yfir að vera ekki að læra fyrir komandi próf í janúar. Það er eitt það ömurlegasta sem ég veit, svona janúarpróf. Nú verða þau leiðindi bara yfirstaðin svo ég get legið áhyggjulaus og lesið alla daga og borðað smákökur og drukkið malt (sem mamma og pabbi koma með frá Íslandi ásamt Ora baununum).
Jæja, nú fer ég hins vegar að læra og kveð ykkur kæru vinir í bili. Ég mun blogga aftur einhvern tímann á aðventunni eða kannski ekki fyrr en milli jóla og nýárs. Hafið það jutte bra og gerið eitthvað huggulegt á aðventunni og takið á móti jólunum með frið og gleði í hjarta... almáttugur hvað konan er orðin væmin, ha??
Ciao í bili
Ruslhildur Kvaran