sunnudagur, október 23, 2005

Nú haustfríið brátt á enda er...

Nú fer haustfríinu alveg að ljúka. Því er eiginlega lokið, nú er bara venjulegt helgarfrí. Ég var að skoða síðasta blogg hjá mér og þetta er það sem ég sagðist ætla að gera í haustfríinu:
  • Fara í bíó
  • Læra fullt, aðallega í tölfræði!
  • Fara í túristaferð um miðbæinn með Lofti frænda
  • Fara til Svíþjóðar í dagsferð
  • Sofa (dálítið) lengi á hverjum degi
  • Líma myndirnar mínar inn í albúm
  • Fá mér kaffi latte með bræddu appelsínusúkkulaði á hverjum morgni
  • Baka kanelsnúða
  • Flokka allar myndirnar mínar og fara með í framköllun

Þetta er sem sagt það sem mig langaði til að gera, og hér kemur listi yfir það sem ég er búin að gera:

  • Læra fullt, aðallega í Solid Waste Treatment and Management (eyddi öllum gærdeginum í að skrifa kafla um brennslu á rusli og nýtingu orku úr rusli, m.a. til rafmagnsframleiðslu og upphitunar á vatni. Mjög spennandi, án gríns!)
  • Bjóða Lofti frænda í mat á fimmtudagskvöldið var og drekka bjór og spila Manna við hann og Hjört til kl. 2
  • Fara til Svíþjóðar í dagsferð
  • Sofa lengi á hverjum degi
  • Fá mér kaffi latte með bræddu súkkulaði ca. annan hvern dag
  • Baka kanelsnúða

Ég er sem sagt búin að gera nánast allt sem mig langaði til að gera, nema að flokka myndirnar mínar sem ég hreinlega gleymdi og bíóferðina ætlum við að geyma þar til síðar í mánuðinum til að eiga eitthvað til góða þið skiljið. Þetta hefur verið alveg hreint dásamlegt frí. Í haust vorum við að hugsa um að fara í eitthvert útlanda-ferðalag við skötuhjúin í haustfríinu, en við fundum engar námslána-vænar ferðir sem okkur leist á. Ég var dálítið hrædd um að dagarnir myndu bara líða hver af öðrum án þess að ég gerði nokkurn hlut nema að hanga í tölvunni en þvert á móti höfum við verið mjög dugleg að drífa okkur í bæinn og hafa það huggulegt. Svo fórum við í dagsferð til Svíþjóðar á föstudaginn, eins og stendur á ofangreindum lista. Við fórum með lest til Helsingør á Norður Sjálandi, sem tekur ca. 40 mín og þaðan tókum við ferju yfir til Helsingborg. Ferjusiglingin tekur ekki nema 20 mín og maður finnur ekki fyrir henni á svona sjóveikislegan hátt. Það er annars dálítið fyndið að maður getur farið í svona duty free store á ferjunni og fólk var alveg að tapa sér á þessari 20 mín siglingu og fyllti litlu handkörfurnar af sælgæti og snyrtivörum og jú neim itt! Við Hjörtur keyptum okkur bara eina ansi fallega dós af Mentosi með alls kyns mystískum bragðtegundum eins og kanel og greip.
Það kom mér annars á óvart hvað Helsingborg er falleg. Ég hélt að þetta væri lítil og ljót iðnaðarborg og hafði ekki gert mér neinar vonir um að finna krúttleg kaffihús eða eitthvað sem gaman væri að skoða. En viti menn, þegar við komum í land blasti strax við okkur feiknar stór og mikill turn uppi á hæð í borginni og steinbogi þar í kring. Þetta eru afar fornar byggingar, eða frá ca. 1380. Við Hjörtur vorum einmitt að tala um það í ferðinni; hvernig var eiginlega ástandið á Íslandi um 1380? Maður þarf ekki einu sinni að fara svo langt aftur í sögunni, um 1800 var ástandið ennþá mjög slæmt á Íslandi, fátækt og vosbúð. EN við rifum okkur líka upp á stuttum tíma og í dag þykir Reykjavík svona trendí borg sem er smart að sækja heim. Dálítið spes með öllum lágreistu bárujárnshúsunum í öllum regnbogans litum en við höfum svo sannarlega allt til alls á Íslandi. Það getur vel verið að það sé dýrt að versla í matinn og úrvalið sé ekki alltaf upp á það besta svona miðað við önnur Evrópulönd, en í mínum huga er Ísland samt alltaf besta land í heimi og Reykjavík fegursta borg sem ég veit um. Og þegar ég hugsa um fiskinn heima þá tárast ég. Nei ok, það eru kannski ýkjur en djísöss kræst hvað fiskurinn heima er góður.
Jæja, nú fleygi ég þjóðrembunni á dyr og sný aftur til Helsingborgar. Við vorum svo heppin að fá svona túristablað á ferjunni og þar var listi yfir ýmis kaffihús og matsölustaði. Þar sem líf okkar Hjartar gengur að miklu leyti út á mat og kaffi og súkkulaði þá grandskoðuðum við listann og rákumst á kaffihús sem okkur leist mjög vel á. Um var að ræða elsta kaffihús borgarinnar þar sem enn væri selt bakkelsi eftir gömlum sænskum uppskriftum. Nú, við gengum þess vegna upp að fyrsta Svía sem við rákumst á þegar við komum í land og spurðum hvar "Fehlmanns konditorium" væri. Hin vinalega sænska kona með bláa augnskuggann sýndi okkur hvert við ættum að fara og það var í raun og veru heppni að við skildum spyrja um akkúrat þetta kaffihús því það kom í ljós að það stóð við göngugötu bæjarins. Það er alls ekki víst að við hefðum fundið hana ef við hefðum ekki haft þessa óstjórnlegu löngum til að bragða á sænskum lúsíukökum, bökuðum eftir fornum uppskriftum. Við fundum sem sagt þetta kaffihús og fengum heimsins bestu samlokur með einhverjum dásamlegum sænskum hvítum osti sem molnaði við snertingu (hljómar ekki vel en bragðaðist heavenly!). Þetta gæti hafa verið einhvers konar geitaostur, ég er ekki alveg sjúr á'ðí. Svo fengum við okkur eina litla sítrónuköku saman og dásamlegt kaffi. Mmmm. Nú, svo fórum við og skoðuðum turninn og steinbogann sem sjást á myndunum hér fyrir neðan. Á fyrri myndinni sést turninn sjálfur og á seinni myndinni er ég að labba niður úr turninum og þá sést yfir borgina og þá sér maður líka steinbogann sem umlykur turninn og svæðið þar í kring.

Þegar við vorum búin að túristast í kringum þenann turn þá fórum við niður að höfn þar sem listhús Helsinborgar er staðsett. Þar fórum við á listasýningu sem heitir Saga Helsingborgar í máli og myndum, og þetta var svona fjöllistasýning, bæði vídeó, ljósmyndir, ýmsir munir til sýnist og upplestur og fleira. Mjög skemmtilegt. Eftir þetta þurftu the cookie monsters aftur að fá sér eitthvað í svanginn og að þessu sinni lá leiðin á æðislegt súkkulaði-kaffihús sem heitir einfaldlega Chocolatte. Þar er selt handgert sænskt súkkulaði og svo eru líka hægt að setjast niður og fá sér kaffi og heitt súkkulaði. Í auglýsingu frá þeim stendur eftirfarandi:
"Nyfiken på en annorlunda upplevelse? I vårt café kan du slå dig ner och njuta en stund av en kopp varm, god choklad. Naturell eller varför inte smaksatt med lite ingefära och chili eller vit choklad och lime? Här finns inga pulver eller genvägar. En rejäl klick chokladtryffel i botten på en kpp varm mjölk. Varsågod. Rör om och lös upp. För den til dina läpper. Njut."
Hljómar þetta ekki eksótískt? Sérstaklega þetta, "För den til dina läpper. Njut". Maður getur ekki annað en fengið sér bragðbættan bolla af heitu súkkulaði eftir að hafa lesið þessa auglýsingu! Og það var akkúrat það sem Hjörtur gerði, hann fékk sér heitt súkkulaði með appelsínu og kardemommum en ég fékk mér bara plein óld capuccino. Matlock gamli. Með þessu fengum við okkur pistasíusúkkulaði, mmmm. Eftir þetta fórum við aftur upp í göngugötuna og skoðuðum okkur um þar, fórum í bókabúð og ég kíkti í H&M (sem by the way er 1000 sinnum flottari þar heldur en hér í Köben). Eftir göngutúrinn um miðbæinn vorum við orðin nokkuð þreytt enda klukkan farin að ganga 17 svo við fórum aftur niður að ferju og héldum heim á leið, sæl og glöð eftir vel heppnaða ferð :) Hér að lokum kemur ein mynd sem Hjörtur tók á meðan við vorum að bíða eftir að komast inn í ferjuna. Þarna sést borgin nokkuð vel og hinar fallegu byggingar. Að öðru leyti er ég farin að læra og fá mér kaffi. Og súkkulaði. Ciao gattinos.